Stórum birtingum fjölgað mikið

Magnaður sjóbirtingur. Kristján Páll Rafnsson mældi þennan 93 sentímetra. Veiðistaðurinn …
Magnaður sjóbirtingur. Kristján Páll Rafnsson mældi þennan 93 sentímetra. Veiðistaðurinn er Syðri-Hólmi í Tungufljóti. Þessi fiskur var veiddur í fyrra. Ljósmynd/Aðsend

Það er eftirtektarvert hversu stórum og mjög stórum sjóbirtingum hefur fjölgað síðustu ár. Sérstaklega kemur þetta skýrt fram í þeim ám þar sem veiðifyrirkomulagið er veiða og sleppa. Ef við horfum fyrst á sjóbirtingsárnar í Meðallandi þá er Tungulækurinn ljóslifandi dæmi. Þar veiðast nú nánast á hverjum degi áttatíu sentímetra birtingar sem eru engir smá fiskar.

Í vor veiddist hundrað sentímetra langur sjóbirtingur í Tungulæknum en í haust er búið að landa 93 og 96 sentímetra fiskum. Báðir veiddust þeir á Breiðunni. Veiðimenn sem voru í læknum á föstudag lönduðu sjö birtingum. Þar af voru fimm áttatíu sentímetrar eða meira og einn af þeim mældist 91 sentímetri.

Stór birtingur úr Ytri-Rangá. Það leynir sér ekki hvað þetta …
Stór birtingur úr Ytri-Rangá. Það leynir sér ekki hvað þetta eru miklir boltar og þykkir. Ljósmynd/JH

Eldvatn í Meðallandi átti mjög undir högg að sækja í byrjun aldarinnar en síðustu sex ár hefur verið sleppiskylda á sjóbirtingi. Það hefur skilað sér í verulegri aukningu í veiði og einnig er þessum fiskum í yfirstærð að fjölga. Síðasta föstudag veiddust 88 og 90 sentímetra sjóbirtingar í Eldvatninu.

Tungufljótið hefur einnig verið að gefa fleiri og fleiri birtinga sem eru stærri en áttatíu sentímetrar. Þar er einnig sleppiskylda á birtingi. Sjóbirtingur sem fær að lifa stækkar og getur gengið oft í ána til hrygningar. Þess vegna eru þeir afar verðmætir í kerfunum og veiðast stærri á næsta ári.

Matthías Stefánssonmeð 90 sentímetra fisk. Þessi er sá stærsti sem …
Matthías Stefánssonmeð 90 sentímetra fisk. Þessi er sá stærsti sem pabbi hans, Stefán man eftir úr Leirá. Ljósmynd/IO

Svipaða sögu er að segja í Laxá í Kjós þar sem birtingurinn hefur farið stækkandi undanfarin ár.

Skýrasta dæmið er þó sennilega litla Leirá skammt frá Akranesi. Eftir að ráðist var þar í sleppiskyldu á fiski hefur birtingurinn dafnað vel og þar eru höfðingjar af áðurnefndri stærð farnir að veiðast, en sáust ekki fyrir nokkrum árum.

Sjóbirtingar sem ná þessari stærð, eru að hausti um og yfir tuttugu pund. Auðvitað fer það nokkuð eftir holdafari en ástand á fiskinum fyrir austan er gott og er hann að sama skapi þykkur.

mbl.is

Seinustu hundraðkallar sumarsins

Lengd á laxi Veiðisvæði Veiðimaður Dagsetning Dags.
101 cm Vatnsdalsá Erlendur veiðimaður 29. september 29.9.
101 cm Eystri-Rangá Grzegorz Loszewski 27. september 27.9.
105 cm Hvítá við Iðu Katrín Tanja Davíðsdóttir 24. september 24.9.
101 cm Víðidalsá Jón Eðvald Halldórsson 22. september 22.9.
107 cm Grímsá Jón Jónsson 22. september 22.9.
101 cm Miðfjarðará Agnar Sigurjónsson 22. september 22.9.
101 cm Hvítá við Iðu Gunnar Pétursson 20. september 20.9.

Skoða meira

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert