Félag Ratcliffes tekur Hafralónsá á leigu

Frá undirritun leigusamningsins. Neðri röð frá vinstri: Júlíus Þröstur Sigurbjartsson …
Frá undirritun leigusamningsins. Neðri röð frá vinstri: Júlíus Þröstur Sigurbjartsson frá Gunnarsstöðum, Guðmundur Vilhjálmsson, frá Syðra Lóni, Jóhannes Sigfússon frá Gunnarsstöðum og Helga Kristín Tryggvadóttir sölustjóri hjá Six Rivers. Efri röð frá vinstri: Þórður Úlfarsson frá Syðri Brekkum og Ævar R. Marinósson frá Tunguseli. Ljósmynd/SRP

Six Rivers Project, félag breska auðmannsins Jim Ratcliffe, hefur undirritað tíu ára leigusamning um veiðirétt í Hafralónsá. Samningurinn var undirritaður í gær á skrifstofu Langanesbyggðar. Veiðifélag Hafralónsár skipaði sérstaka samninganefnd þar sem áttu sæti fimm landeigendur og var það meðal annars gert til að koma fleirum að borðinu, en aðeins þrír skipa stjórn veiðifélagsins.

Helga Kristín Tryggvadóttir, sölustjóri Six Rivers Project leiddi ferlið fyrir hönd leigutaka og segir hún í samtali við Sporðaköst að ferlið hafi tekið nokkurn tíma en verið mjög opið og niðurstaða hafi verið mjög góð. Á félagsfundi þar sem greidd voru atkvæði um samninginn sögðu þrettán landeigendur já, einn sat hjá og einn greiddi atkvæði gegn samningnum.
„Ég er mjög þakklát landeigendum við Hafralónsá að sýna okkur þetta afdráttarlausa traust. Við erum öll spennt að fara í samstarf við veiðifélagið og landeigendur um uppbyggingu á ánni og hefja þar rannsóknir og stuðla að auknum framgangi Hafralónsár. Við teljum ána eiga mikið inni og við munum fara strax í hrognagröft og flutning á löxum í haust,“ sagði Helga Kristín í gær.

Frá Hafralónsá. Hún þykir ægifögur og jafnframt erfið yfirferðar þar …
Frá Hafralónsá. Hún þykir ægifögur og jafnframt erfið yfirferðar þar sem víða þarf að klöngrast niður í djúp gljúfur til að nálgast veiðistaði. Ljósmynd/NFJ


Nýtt sex hundruð fermetra veiðihús verður byggt við Hafralónsá í líkingu við húsin sem á reisa við Hofsá og Miðfjarðará í Bakkafirði. Hönnun og staðsetning liggur ekki fyrir en verður kynnt síðar.

Aðspurð hvort þetta muni leiða til hækkunar á verði á veiðileyfum sagði Helga Kristín að það myndi gerast. Leiguverð er nú hærra en verið hefur og mun verðið hækka en það verður gert í áföngum.

„Þetta er svo spennandi. Hafralónsá er einhver fallegasta laxveiðiá sem ég hef kynnst. Ég veiddi hana í fyrsta skipti í fyrra og hún heillaði mig gjörsamlega. Það verður mikið ævintýri að fara í þá uppbyggingu og rannsóknir sem kveðið er á um í samningnum.“

Nafn félagsins, Six Rivers Project vísar til ánna sex sem félagið ýmist á, að fullu eða að hluta eða er með á leigu. Þær eru; Selá og Hofsá í Vopnafirði. Sunnudalsá, Vesturdalsá og Miðfjarðará í Bakkafirði. Segja má að með leigusamning undirritaðan um Hafralónsá, standi félagið loks aftur undir nafni ef horft er í heiti félagsins. En Hafralónsá er þá sjötta áin sem félagið fóstrar. Áður fyrr var Tungulækur sjötta áin en átti svo sem ekki alveg samleið með áformum um rannsóknir og uppbyggingu á laxveiðiám.

mbl.is

Seinustu hundraðkallar sumarsins

Lengd á laxi Veiðisvæði Veiðimaður Dagsetning Dags.
101 cm Vatnsdalsá Erlendur veiðimaður 29. september 29.9.
101 cm Eystri-Rangá Grzegorz Loszewski 27. september 27.9.
105 cm Hvítá við Iðu Katrín Tanja Davíðsdóttir 24. september 24.9.
101 cm Víðidalsá Jón Eðvald Halldórsson 22. september 22.9.
107 cm Grímsá Jón Jónsson 22. september 22.9.
101 cm Miðfjarðará Agnar Sigurjónsson 22. september 22.9.
101 cm Hvítá við Iðu Gunnar Pétursson 20. september 20.9.

Skoða meira

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert