Allt frá framkomu yfir í skyndihjálp

Síðasti útskriftarhópur Ferðamálaskóla Íslands. Samtals voru 23 útskrifaðir síðasta vor. …
Síðasti útskriftarhópur Ferðamálaskóla Íslands. Samtals voru 23 útskrifaðir síðasta vor. Nú eru 120 manns sem hafa lokið náminu. Sjötta skólaárið hefst í febrúar. Ljósmynd/Reynir Friðriksson

Nám fyrir þá sem vilja gerast veiðileiðsögumenn veiðimanna á Íslandi hefur fest sig í sessi. Nú er sjötta kennsluárið að renna upp og hefst kennsla í byrjun febrúar. Undanfarin fimm ára hafa 120 veiðileiðsögumenn verið útskrifaðir úr náminu. Allur gangur er svo á hvort menn eða konur takast á hendur þann starfa að leiðsegja veiðimönnum eða nýta sér námið fyrir eigin þarfir. Læri að verða betri veiðimenn.

Landsamband Veiðifélaga í samstarfi við Ferðamálaskóla Íslands bjóða upp á námið fyrir þá sem vilja gerast leiðsögumenn bæði innlendra og erlendra veiðimanna í ám og vötnum landsins.

„Veiðileiðsögunámið er hagnýtt og nýtist í senn starfandi leiðsögumönnum og áhugasömum aðilum sem áhuga hafa á að sinna slíkri leiðsögn.  Námið gefur innsýn í grunnatriði og ítarlegri þætti er varða veiðileiðsagnarþjónustu. Sérfróðir leiðsögumenn kenna undirstöðuatriði stangveiða og sérfræðingar miðla fróðleik um fiskana er við sögu koma og vistfræði þeirra,“ segir í fréttatilkynningu frá Ferðamálaskóla Íslands um námið. Reynir Friðriksson er faglegur stjórnandi og sér um skipulagningu. 

Faglegur stjórnandi námsins er Reynir Friðriksson. Hér hampar hann bleikju …
Faglegur stjórnandi námsins er Reynir Friðriksson. Hér hampar hann bleikju úr Tungná. Ljósmynd/Reynir Friðriksson

Það er farið yfir alla hluti sem geta varðað starf leiðsögumannsins. Allt frá framkomu við veiðimenn og yfir í það hvernig rétt sé að bregðast við áföllum og slysum. Veigamesti þátturinn í náminu eru þó leiðsögnin sjálf og þar er farið yfir lífríkið, göngumynstur og ýmislegt fleira. Hér að neðan má sjá helstu punkta er námið sjálft varðar.

  • Meðal kennsluefnis eru undirstöðuatriði er varða líffræði og lífshætti íslenskra ferskvatnsfiska. Meðal annars er fjallað um árstíðabundnar göngur fiska, gönguhegðun þeirra í ferskvatni og sjó og samspil þátta er koma við sögu.
  • Farið er yfir þætti er varða umgengni leiðsögumanna við veiðimenn allt frá móttöku þeirra, til veiðanna og annarra ráða er varða dvöl í veiðihúsum.
  • Farið verður í tveggja daga ferð í Eystri  Rangá þar sem tekin verður fyrir kasttækni með einhendum og tvíhendum.
  • Lögð er áhersla á Skyndihjálp og áfallahjálp þar sem litið er sérstaklega til þátta er tengjast hættum við ár og vötn..
  • Farið er yfir handtök er varða frágang á afla eftir veiði, blóðgun og flökun á fiski. Samhliða verður farið yfir grunnþætti sem varða meðhöndlun fiska með hliðsjón af "veiða og sleppa" veiðihættinum.
  • Allir leiðbeinendur hafa áratuga reynslu sem leiðsögumenn eða vísindamenn hver á sínu sviði.
  • Námið er alls 170 stundir og fer bæði fram í kennslustofu og á bökkum Eystri  Rangár eða Hólsár. Kennslan hefst miðvikudaginn 7. febrúar.

Reynir Friðriksson segir áhugann á náminu mikinn og flestir sem komi í skólann komi í gegnum aðra þá sem þegar hafa lokið náminu. „Mér finnst það magnað og góður vitnisburður að flestir okkar nemendur hafa fengið jákvæð meðmæli frá þeim sem þegar hafa lokið skólanum,“ sagði Reynir í samtali við Sporðaköst.

Horft er til þess að tuttugu nemendur komist að hverju sinni en fjöldinn hefur farið allt upp í 28 manns eitt árið.

Leiðbeinendur eru fjölmargir og þar eru mörg þekkt nöfn úr veiðibransanum ásamt fleirum. Meðal þeirra sem miðla af reynslu í vetur eru:

Þröstur Elliðason, fiskeldisfræðingur - Strengir

Kristján Friðriksson, veiðimaður  og dálkahöfundur

Reynir Friðriksson, sjávarútvegsfræðingur - veiðileiðsögumaður

Haraldur Eiríksson, Laxá í Kjós

Björn Theodórsson, fiskeldisfræðingur og leiðsögumaður

Kristinn Helgason, Landsbjörg

Sindri Hlíðar, Fish Partner

Sigurður Héðinn, Siggi Haugur

Sigurkarl Stefánsson, fuglafræðingur

Sr. Bragi Skúlason, Landspítalinn

Kennarar geta bæst við og einnig orðið breyting á eftir aðstæðum. En þetta er uppleggið fyrir önnina. 

Fyrir áhugasama er bent á netfangið fs@menntun.is

mbl.is

Seinustu hundraðkallar sumarsins

Lengd á laxi Veiðisvæði Veiðimaður Dagsetning Dags.
100 cm Mýrarkvísl Tim Racie 23. júlí 23.7.
102 cm Víðidalsá Ragnheiður Þengilsdóttir 14. júlí 14.7.
106 cm Laxá í Aðaldal Kristrún Ólöf Sigurðardóttir 8. júlí 8.7.
100 cm Blanda Patrick Devennie 20. júní 20.6.
100 cm Kjarrá Sigurður Smári Gylfason 19. júní 19.6.
Veiðiárið 2023:
101 cm Vatnsdalsá Erlendur veiðimaður 29. september 29.9.
101 cm Eystri-Rangá Grzegorz Loszewski 27. september 27.9.

Skoða meira

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert