Allsherjar veiðipartý í lok apríl

Sigurður Héðinn er að ráðast í stórt og mikið verkefni. …
Sigurður Héðinn er að ráðast í stórt og mikið verkefni. Dagana 27. og 28. apríl þarf útivistar- og veiðifólk að taka frá. Sýningin Flugur og veiði verður þá haldin undir stúkunni í Laugardalnum. Ljósmynd/Eggert Skúlason

Veiðifólk ætti að taka frá dagana 27. og 28. apríl. Þá daga verður efnt til sýningarinnar Flugur og veiði undir stúkunni á Laugardalsvelli. Aðalhvatamaður og skipuleggjandi er Sigurður Héðinn, Haugurinn eins og hann er jafnan kallaður.

„Já. Ég reikna með því að þarna verði allir. Allir sem tengjast útivist og veiði á einhvern hátt,“ svarar Haugurinn aðspurður um hvort þarna verði allir.

Hann segir hugmyndina hafa kviknað í ördeyðu í október. „Það er lítið að gera í veiðibúðum á þeim tíma og ég var að hugsa með sjálfum mér hvað ég ætti að gera. Fúli karlinn var á annarri öxlinni og sagði mér að hætta þessu bara. Svo var sá káti og bjartsýni á hinni öxlinni og hann sagði bara, fulla ferð. Sá bjartsýni hafði betur,“ hlær Haugurinn. 

Haugurinn hefur farið á margar sýningar erlendis. Hér spjallar hann …
Haugurinn hefur farið á margar sýningar erlendis. Hér spjallar hann við viðskiptavin á sýningu í Bandaríkjunum. Hann ætlar að notfæra sér reynsluna af þátttöku í sýningum til að skapa spennandi samkomu hér heima. Ljósmynd/SH

Nú er þetta komið á koppinn og fjölmargir aðilar í útivist og veiðitengdri starfsemi hafa staðfest áhuga og komu sína. Það er langt síðan að veiðisýning hefur verið haldin af þessari stærðargráðu. Ýmsar útgáfur hafa litið dagsins ljós bæði í Háskólabíói og Íslenska fluguveiðisýningin var haldin á sínum tíma. Það þarf hins vegar að fara hinu megin við aldamótin til að minnast Veiðimessunnar sem Stefán Magnússon skipulagði snemma á tíunda áratug síðustu aldar til að finna eitthvað sambærilegt.

„Ég vona að allir verði þarna. Allir sem tengjast útivist og veiði með einhverjum hætti. Áhuginn sem ég er að upplifa frá fyrirtækjum er mikill. Svo vona ég að þetta verði ein allsherjar samkoma fyrir veiði– og útivistarfólk. Ég valdi þessar dagsetningar með það í huga. Daginn er virkilega farið að lengja og veiðitímabilið er hafið og styttist í laxinn. Passlega langt liðið frá páskum og sumardagurinn fyrsti rétt afstaðinn.“

Skipulagið er á fullu og svona mun sýningarsvæðið raðast niður. …
Skipulagið er á fullu og svona mun sýningarsvæðið raðast niður. Í mörg horn að líta, segir Haugurinn. Ljósmynd/SH

Fjöldi fyrirtækja hefur þegar gefið jákvætt svar til Haugsins og hann fer bjartsýnn í þetta verkefni. Viðurkennir reyndar að í mörg horn sé að líta, en hann er einyrki með þeim kostum og göllum sem því fylgja. „Ég þarf ekki marga og stóra fundi um ákvarðanatöku. Ég hugsa málið og tek svo ákvörðun. Minnir mig svolítið á þegar ég fór fyrst til sjós fimmtán ára gamall. Þá var ég kallaður upp í brú og skipstjórinn tilkynnti mér að um borð í þessu skipi væru bara tvennar skoðanir. Annars vegar mín skoðun og hins vegar röng skoðun. Ég er enn að hugsa um þetta 45 árum síðar,“ segir Haugurinn hugsi.

Aðstaðan undir stúkunni á Laugardalsvelli er mjög flott í slíkan viðburð að mati Sigurðar Héðins. Nóg af bílastæðum og mikið og gott pláss. Hann hefur sjálfur sótt margar sýningar erlendis og er að reyna að taka það besta úr þeirri upplifun. Aðgangseyri verður stillt í hóf segir hann og fullyrðir að gestir muni ekki svitna yfir því verðlagi þó veiðimenn séu ýmsu vanir þegar kemur að verðlagningu.

Áhugasamir geta nálgast allar frekari upplýsingar hjá Haugnum með því að senda tölvupóst á netangið siggi@haugur.is

mbl.is

Seinustu hundraðkallar sumarsins

Lengd á laxi Veiðisvæði Veiðimaður Dagsetning Dags.
100 cm Mýrarkvísl Tim Racie 23. júlí 23.7.
102 cm Víðidalsá Ragnheiður Þengilsdóttir 14. júlí 14.7.
106 cm Laxá í Aðaldal Kristrún Ólöf Sigurðardóttir 8. júlí 8.7.
100 cm Blanda Patrick Devennie 20. júní 20.6.
100 cm Kjarrá Sigurður Smári Gylfason 19. júní 19.6.
Veiðiárið 2023:
101 cm Vatnsdalsá Erlendur veiðimaður 29. september 29.9.
101 cm Eystri-Rangá Grzegorz Loszewski 27. september 27.9.

Skoða meira

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert