Þetta sjúklega svala eldhús er staðsett í Kaliforníu og ber þess sannarlega merki. Afslöppuð stemning, opið skipulag, úthugsuð smáatriði, gott vinnurými og litlagleði er meðal þess sem einkennir það en eigendur þess eru sérlega ánægð með útkomuna.
Eldhúsið vinnur með hefðbundinn grunn sem er síðan skreyttur með óteljandi smáatriðum. Efri skáparnir öðrum megin eru himinbláir með gulum bakgrunni og skúffurnar öðrum megin á eyjunni eru málaðar í sama lit.
Útkoman er virkilega flott og segir mikið um fjölskylduna sem í því býr. Persónulegt og sérstakt... eins og eldhús eiga að vera.
https://contemporaryfamilies.org/houseworkandrelationshipquality/