Opnuðu veitingastað á Spáni í fæðingarorlofinu

Helga og Mano.
Helga og Mano. mbl.is/úr einkasafni

Helga Sörens og Mano Mandour hafa opnað veitingastaðinn Mano´s á Alicante á Spáni. Þar með er sagan ekki öll sögð því Helga er matreiðslumaður og Mano er viðskiptafræðingur með ómældan áhuga á pítsugerð.

Hefur hann meðal annars búið á Ítalíu þar sem hann lærði pítsugerð og starfaði við pítsugerð milli þess sem hann keppti í sundi, en hann er jafnframt fyrrverandi atvinnumaður í sundi. Leið hans lá til Noregs þar sem hann og Helga kynntust en þau eru í dag gift.

„Við komum upphaflega til Spánar til að eyða fæðingarorlofinu hér. Við hjónin erum bæði kokkar og þetta fæðingarorlof endaði á að vinda aðeins upp á sig. Við fengum íbúð á síðustu stundu í bæ sem ég vissi ekki að væri til fyrr en ég flutti í hann,“ segir Helga, spurð um tildrög þess að þau opnuðu Mano´s. „Svo voru nokkrar raddir sem bentu okkur á Quesada. Við könnuðum málið en létum kyrrt liggja í svolítinn tíma en tékkuðum aftur í desember og þá datt þetta eiginlega upp í hendurnar á okkur. Húsnæðið var fokhelt og glænýtt.“

Helga segir marga Íslendinga heimsækja Orihuela Costa og Torrevieja en þau séu staðsett  í Ciudad Quesada sem sé í 15 mínútna fjarlægð frá Torrevieja og 40 mínútur frá Alicante.

Viðtökurnar hafa verið gríðarlega góðar og fólk er greinilega ánægt að fá okkur og það sem við höfum upp á að bjóða,“ en veitingastaðurinn býður upp á svokallað heilsu-skyndifæði ef svo má að orði komast. Pítsur, vefjur, salöt, djúsar, brauð og kaffi eru á matseðlinum og greinilegt að hér eru tveir meistarakokkar á ferð.

Facebook-síða Mano´s.

Heimasíða Mano´s.

Staðurinn að utan.
Staðurinn að utan. mbl.is/Ingibjörg Sörensdóttir
Mano´s býður upp á girnilegar pítsur.
Mano´s býður upp á girnilegar pítsur. mbl.is/Ingibjörg Sörensdóttir
Ferskleikinn í fyrirrúmi.
Ferskleikinn í fyrirrúmi. mbl.is/Ingibjörg Sörensdóttir
Ferskir djúsar eru hluti af matseðlinum.
Ferskir djúsar eru hluti af matseðlinum. mbl.is/Ingibjörg Sörensdóttir
Holl og girnileg salöt.
Holl og girnileg salöt. mbl.is/Ingibjörg Sörensdóttir
Mano og Helga fyrir utan veitingastaðinn sinn.
Mano og Helga fyrir utan veitingastaðinn sinn. mbl.is/Inga Sörensdóttir
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert