Töfratækið sem Nigella neitar að nota

Hin eina sanna Nigella Lawson.
Hin eina sanna Nigella Lawson. VALERY HACHE

Þetta verður ábyggilega umdeild frétt enda hafa menn misjafnar skoðanir á þessu töfratæki sem virðist þó almennt í náðinni ... að minnsta kosti þetta árið enda var þetta jólagjöfin í fyrra.

Við erum að tala um sous vide-eldunargræju og þá staðreynd að sjálf Nigella Lawson lét hafa eftir sér á dögunum að slíkt tæki myndi aldrei rata inn fyrir hennar eldhúsdyr.

Og ástæðan? Jú, Nigella segir að sous vide-eldamennskan eyðileggi alveg töfra eldamennskunnar.

Að minnsta kosti ef maður er hamfarakokkur eins og Nigella sem eldar mat með hjartanu og smakkar allt til. Ekki má heldur gleyma látunum og lyktinni sem er Nigellu nauðsynleg þannig að sé málið skoðað frá þeirri hlið hefðum við öll getað sagt okkur að líkurnar á því að sjá Nigellu sous vida í sínum næsta sjónvarpsþætti væru engar.

Það væri ekki beint í anda Nigellu að elda matinn …
Það væri ekki beint í anda Nigellu að elda matinn í poka. Francesca Yorke
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert