Sumarblóm sem má borða

mbl.is/Blómaval

Sumarblóm eru ekki bara ákaflega fögur og vellyktandi heldur eru þau ágæt til átu - að minnsta kosti sum þeirra. Snjallt er að nota þau til skreytinga, þá sérstaklega á eftirrétti og svo auðvitað í sallöt. 

Blóm skjaldfléttunnar minna á pipar, krónublöð morgunfrúar henta vel í pottrétti og blöð fagurfífils eru góð í salat. Sumarblóm eru því ekki bara augnayndi, þau eru líka góð í magann.

Dúkablóm Fíngert og fallegt blóm sem svipar til flauelsblóms, enda náskyldar tegundir. Plantan er dugleg að blómstra en viðkvæm fyrir kulda og bleytu. Krónublöðin eru bragðsterk og ágæt sem skraut á salat. Blöðin má nota sem krydd í staðinn fyrir estragon.

Fagurfífill Vinsælt sumarblóm og mikil garðaprýði. Fáir vita aftur á móti að krónublöðin bragðast ágætlega og henta vel sem skraut á mat. Einnig má saxa niður laufblöðin og nota þau í salat.

Morgunfrú Stór appelsínugul blóm með mörgum krónublöðum sem auðvelt er að rífa af. Fara vel í pottrétti, með hrísgrjónum eða salati. Krónublöðin henta líka ágætlega sem skraut á súpu og ljósar sósur. Blöðin eru líka góð í salat.

Nellika Blóm í mörgum litum. Blómin eru æt en þykja fullbragðsterk og henta því vel sem bragðaukar í olíur og edik. Þurrkuð blöð eru einnig notuð sem skraut á kökur og búðinga.

Skjaldflétta Auk blaða og blóma eru fræbelgir og óþroskuð fræ skjaldfléttunnar æt. Blómin eru falleg í salatið, af þeim og blöðunum er milt sinnepsbragð og þau bragðast svipað karsi. Best þykir að neyta plöntunnar hrárrar þar sem hún missir bragð við hitun. Skjaldfléttan er mikil lækningajurt og frumbyggjar í Perú og Bólivíu rækta hana sem matjurt sem þeir neyta í ríkum mæli. Í plöntunni eru efni sem halda vírussýkingum í skefjum, því er te af skjaldfléttu gott við kvefi. Blöðin má þurrka til vetrarins.

Stjúpa Án efa harðgerðustu sumarblómin sem vaxa hér á landi. Blómin eru litskrúðug og falleg og ómissandi í garðinn. Fáir vita þó að bæði blóm og blöð eru æt og bragðast ágætlega hrá í salati og með ítölskum mat. Hefð er fyrir því að nota sykurþurrkuð blómin til að skreyta kökur.

Sólblóm Allir þekkja fræ sólblómsins en færri vita að krónublöð og blómvísar jurtarinnar eru einnig ætir og gefa frá sér svipað bragð og fræin, en mildara. Gott er að rista fræin á pönnu en krónublöðin og blómvísarnir þykja bestir hráir. Nýjustu yrki sólblóma, til dæmis Titan, eru með feikilega stór blóm sem verða allt að 60 sentímetrar í þvermál.

Heimild: Vilmundur Hansen / Blómaval

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert