Svona verður poppið helmingi betra

Til er það ráð sem er í senn sorglega einfalt og um leið afskaplega árangursríkt. Líkur eru á að poppið þitt verði umtalsvert betra og bústnara ef þú beitir þessari aðferð.

Láttu baunirnar liggja í bleyti í tíu mínútur. Helltu svo vatninu af og láttu baunirnar þorna. Það sem gerist í kjölfarið er að umtalsvert fleiri baunir poppast auk þess sem poppið verður stærra og gómsætara.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert