Einn af styrkleikum Teema-vörulínunnar er fallegir litir og þær skemmtilegu litasamsetningar sem hægt er að raða saman með ólíkum Teema-litum. Litir eru uppfærðir reglulega til að halda Teema-litasamsetningunum í samræmi við tískustrauma hverju sinni. Nýjasti liturinn, powder, blandast fallega við aðra liti í Teema-línunni.
Liturinn powder er fágaður, heitur og hlutlaus litur sem hefur fallega mýkt. Hann er góður bakgrunnur undir öll litríku innihaldsefnin sem hægt er að nota í matargerð ásamt því sem hann leyfir matnum að njóta sín.
Fyrst um sinn verða framleiddir diskar í þremur stærðum (17, 21 og 26 cm), skálar í tveimur stærðum (15 og 21 cm) og 30 cl kaffikrús.