Strangt mataræði getur verið töluvert vesen þegar maður er að þvælast um á ókunnum slóðum eins og ketó-drottningin Jenna Jameson komst að á dögunum þegar hún var í fríi.
Hún segist hafa misst stjórnina á mataræðinu þar sem hún hafði ekki alltaf aðgang að viðeigandi fæðu auk þess sem það er ríkt í okkur að tengja frí við að leyfa sér allt milli himins og jarðar - ekki síst í mataræðinu.
Jenna þyngdist um tvö kíló í fríinu en segist hafa verið fljót að ná þeim af sér þegar hún kom heim á ný og fór í sína venjulegu rútínu.
Þetta er gott vegaesti fyrir okkur hin nú þegar sumarið er komið. Mataræðið bíður þess oft ekki bætur þegar það skín sól en munum að lífið snýst líka um að njóta. Gullna reglan er að fara ekki alveg í ruglið.
View this post on InstagramA post shared by Jenna Jameson (@jennacantlose) on Mar 3, 2019 at 9:32am PST
- - -
Fylgstu með Matarvefnum á Instagram og Facebook. Endalaus ævintýri, hugmyndir, skemmtilegir leikir og allt það heitasta heita ...