Við höfum laumulega þráhyggju fyrir mataræði fræga fólksins þessa dagana enda alltaf gaman að vita hvað hinn helminguirnn er að maula.
Yfirleitt er um eitthvað hollt og gott að ræða en ofurfyrirsætan Bella Hadid er ekki í þessum flokki. Hún birti nýverið mynd á Instagram af grillaðri ostasamloku. Sagði hún að þetta væri hennar uppáhaldsmatur og hún borðaði hann daglega ásamt frönskum og tómatsósu.
Sumt fólk þarf hreinlega ekki að passa hvað það lætur ofan í sig...