Glæsilegur nýr veitingastaður á Laugavegi

Það er ekkert lát á spennandi nýjungum í miðborginni og nýjasta viðbótin í veitingageiranum er veitingastaðurinn Lóa Bar-Bistro á Center-hótelinu á Laugavegi 95-99. Staðurinn er sérlega fallega hannaður og matseðillinn þykir einstaklega skemmtilegur.

Að sögn Íseyjar Grétu Þorgrímsdóttur, hótelstjóra á Center Hotel Laugavegi, var hugmyndafræðin á bak við Lóu að bjóða upp á léttan og umfram allt bragðgóðan mat í líflegu umhverfi. „Það var einnig mikið lagt upp úr hönnuninni, en staðurinn er ákaflega fallega hannaður með léttum viðarhúsgögnum og notalegum blágrænum litum,“ segir Ísey, en það var alþjóðlega hönnunarstofan I AM sem sá um alla hönnunina.

Maturinn hins vegar er hannaður af Egg Soldiers, sem er breskt fyrirtæki sem sérhæfir sig í matarhönnun, hugmyndaþróun og almennri greiningarvinnu fyrir veitingastaði. Fyrirtækið er í eigu þeirra Toph Ford og hins íslenska Stefan Cosser, sem meðal annars hefur starfað á The Fat Duck hjá Heston Blumenthal. Í miðjum veitingastaðnum er stór bar þar sem mikið er lagt upp úr góðum kokkteilum en jafnframt er boðið upp á „happy hour“ milli 16 og 18.

Ísey segir jafnframt að boðið verði upp á viðburði á staðnum og fyrsta skrefið sé að vera með plötusnúð á laugardagskvöldum og lifandi tónlist á föstudagskvöldum. Það gefur því augaleið að gestir miðborgarinnar hafa fengið spennandi valkost upp í hendurnar með tilkomu Lóu Bar-Bistro en jafnframt verður boðið upp á djass í vetur sem ætti að verða mörgum mikið gleðiefni enda fátt sem toppar góða tónlist og vægt verð á barnum.

Markhópurinn er að sögn Íseyjar bæði erlendir gestir og heimamenn. Vissulega sé staðurinn á jarðhæð hótelsins en hann sé öllum aðgengilegur og fyrir vikið verði áhugaverð blanda viðskiptavina sem skili sér í skemmtilegri stemningu sem gestir kunni að meta og auki enn við fjölbreytileika miðborgarinnar.

Ísey Gréta Þorgrímsdóttir hótelstjóri hjá Center-hótel
Ísey Gréta Þorgrímsdóttir hótelstjóri hjá Center-hótel Haraldur Jónasson/Hari
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert