Kokkalandsliðið vann ólympíugull

Íslenska kokkalandsliðið uppskar gullverðlaun í fyrstu keppnisgrein liðsins á Ólympíuleikunum …
Íslenska kokkalandsliðið uppskar gullverðlaun í fyrstu keppnisgrein liðsins á Ólympíuleikunum í matreiðslu sem fara fram í Stuttgart þessa dagana. Ljósmynd/Aðsend

Íslenska kokkalandsliðið vann til gullverðlauna á Ólympíuleikum matreiðslumeistara í Stuttgart í Þýskalandi í gær. Gleðin var ósvikin eins og sjá má á myndskeiði sem liðið deildi á Facebook-síðu Kokkalandsliðsins. 

„Ég er ótrúlega ánægður og þakklátur. Landsliðið hefur lagt ótrúlega mikið á sig bæði í undirbúningi og keppninni hérna úti og þau uppskera glæsilega,“ segir Björn Bragi Bragason, forseti Klúbbs matreiðslumanna, sem er úti í Stuttgart með liðinu.

Liðið tekur þátt í tveimur greinum að þessu sinni. Greinin sem liðið sigraði nefnist „Chef's Table“. Liðið keppir svo aftur á morgun í „Hot Kitchen“. Liðið hefur á síðustu árum raðað inn gullverðlaununum á alþjóðlegum mótum sem hefur tryggt þeim stöðu eins fremsta landsliðs í heimi. 

Sigurjón Bragi Geirsson, Björn Bragi Bragason, Fanney Dóra Sigurjónsdóttir, Kristinn Gísli Jónsson, Snorri Victor Gylfason, Sindri Guðbrandur Sigurðsson, Snædís Xyza Mae Jónsdóttir, Ísak Darri Þorsteinsson, Jakob Zarioh Sifjarson Baldvinsson, Ísak Aron Ernuson og Chidapha Kruasaeng mynda landsliðið. Í Chef´s table framreiddu þau sjö rétta hátíðarkvöldverð fyrir 10 manna borð, auk tveggja dómara. Kvöldverðurinn samanstóð m.a. af fiskréttafati, pinnamat, vegan rétti, lambakjöti og desert. Dómarar alls staðar að úr heiminum með tilheyrandi réttindi dæma í keppnunum þar sem meðal annars er tekið mið af bragði, útliti, samsetningu, hráefnisvali og fagmennsku við undirbúning og matargerð.

Í keppninni um heitu réttina, sem fram fer á morgun, mun landsliðið útbúa þriggja rétta matseðill með forrétt, aðalrétt og eftirrétt sem eldað er frá grunni á keppnisstað fyrir 110 gesti. 

Fjögur tonn af farangri

Kokkalandsliðið hefur æft stíft síðustu átta mánuði fyrir keppnina. Hátt í fjögur tonn af búnaði voru send til Þýskalands en liðið þarf að setja upp fullbúið eldhús á keppnisstaðnum. Þá er ótalið það hráefnið sem flytja þarf á staðinn en kokkalandsliðið leggur áherslu á að nota sem mest af hágæða íslensku hráefni í matargerðina. 

Fjölmargir hafa lagt landsliðinu lið við undirbúninginn, til að mynda Matarauður, Íslandsstofa, Ísey skyr og MS.  

Ólympíuleikarnir, IKA Culinary Olympics, eru haldnir á fjögurra ára fresti og í ár fagnar keppnin 25 ára afmæli. Þar mætast um 2.000 af færustu kokkum heims sem keppa sín á milli um gull-, silfur- og bronsverðlaun. Keppnin hófst 14. febrúar og stendur til 19. febrúar. Lið frá um 60 þjóðum keppa á leikunum. 

Íslenska kokkalandsliðið hefur síðustu ár skipað sér meðal þeirra færustu í matreiðslu og er nú meðal 6 bestu kokkalandsliða heims.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert