Uppskriftin hér að neðan er fyrir tveggja hæða tertu en ef þið vijið gera extra stóra páskatertu eins og á myndinni þá margfaldið þið uppskriftina með 1,5 og bakið botnana í þremur formum í stað tveggja.
Döðlu- og súkkulaðiterta með bananarjóma, skreytt með páskaeggjum og litlum fylltum súkkulaðieggjum.
Smakkast best með ískaldri mjólk eða góðum kaffibolla.
Döðlu- og súkkulaðibotnar:
- 4 stk. egg
- 100 g púðursykur
- 100 g sykur
- 200 g döðlur, saxaðar
- 200 g súkkulaði, saxað
- 125 g hveiti
Bananarjómi:
- 4 dl rjómi frá Gott í matinn
- 1 stk. stór banani, stappaður
Súkkulaðikrem:
- 150 g suðusúkkulaði
- 1 dl rjómi frá Gott í matinn
- 1 msk. síróp
Skraut:
- lítil páskaegg, í bitum
- cadbury mini eggs
Döðlu- og súkkulaðibotnar
- Ofn hitaður í 180 gráður með blæstri. Tvö hringlaga form smurð vel og bökunarpappír settur í botninn.
- Döðlur og súkkulaði saxað smátt og hveitinu blandað saman við.
- Egg og sykur þeytt mjög vel saman þar til blandan er ljós og létt.
- Hveiti, súkkulaði og döðlum blandað varlega saman við eggjablönduna með sleif.
- Hellt í formin og bakað í 15-20 mínútur.
- Kælt aðeins, svo losað úr formunum og svo kælt alveg.
Bananarjómi
- Leggið annan botninn á kökudisk.
- Þeytið rjómann og blandið stöppuðum banananum saman við rjómann.
- Smyrjið ofan á botninn og leggið hinn botninn ofan á.
Súkkulaðikrem
- Bræðið allt saman í potti við vægan hita.
- Kælið aðeins og hellið svo yfir.
- Dreifið úr kreminu þannig að það leki aðeins niður hliðarnar á tertunni.
- Skreytið með litlum páskaeggjabrotum og liltu súkkulaðifylltu eggjunum frá Cadbury.
- Geymið tertuna í ísskáp í 2-3 klst. áður en hún er borin fram.