Geggjaðar vefjur sem slá í gegn

Tikka masala vefjur eins og þær gerast bestar.
Tikka masala vefjur eins og þær gerast bestar. mbl.is/Hildur Rut Ingimarsdóttir

Hér er uppskrift að ljúffengum vefjum með osti og kjúklingi í tikka masala-sósu – bornar fram með sætkartöflufrönskum, mango chutney-sósu og fersku salati. Það er Hildur Rut sem býður okkur upp á þessa veislu.

„Ég nota þrjár vörur frá Pataks í réttinn. Ég hef notað þessar vörur í matargerð lengi og elska að grípa í þær ef mig langar í eitthvað einfalt og gott með indversku ívafi. Sósurnar eru dásamlega ljúffengar og hægt að nota þær í ýmsa mismunandi rétti,“ segir Hildur Rut.

Tikka masala-vefjur sem slá í gegn

  • 4 kjúklingabringur (líka gott að nota grænmeti t.d. blómkál og brokkólí)
  • 1 krukka tikka masala-sósa frá Pataks
  • ólífuolía
  • salt og pipar
  • rifinn mozzarellaostur
  • Philadelphia-rjómaostur
  • Missioni-tortillur með grillrönd

Sætkartöflufranskar

  • 1 sæt kartafla
  • 1-2 msk. madras paste frá Pataks
  • 2 msk. ólífuolía

Mangó chutney-sósa

  • 1 dl sýrður rjómi
  • 1 dl Heinz-majónes
  • 3-4 msk mango chutney frá Pataks
  • 1 msk safi úr sítrónu
  • salt og pipar

Ferskt salat

  • 1 dl agúrka
  • 1 dl rauðlaukur
  • spínat eftir smekk
  • salatdressing (má sleppa, en mæli samt með!)
  • 1 msk. ólífuolía
  • 1 msk. safi úr ferskri sítrónu
  • salt og pipar
  • garam masala-krydd
  • 1 msk ferskur kóríander, smátt skorinn

Aðferð:

  1. Skerið kjúklinginn í litla bita. Steikið hann upp úr ólífuolíu og saltið og piprið. Blandið tikka masala-sósunni saman við kjúklinginn og hrærið.
  2. Smyrjið tortillurnar með rjómaosti, stráið mozzarellaosti yfir og dreifið kjúklingnum ofan á. Gott að dreifa öllu á annan endann á tortillunni, brjóta hana saman eins og umslag og rúlla henni upp.
  3. Raðið vefjunum í eldfast form og penslið þær með ólífuolíu. Bakið í ofni í 10 mínútur við 190°C á blæstri.
  4. Skerið tortillurnar í tvennt og berið fram með salati, sósu og sætkartöflufrönskum.

Sætkartöflufranskar

  1. Skerið kartöfluna í strimla. Veltið þeim upp úr madras paste, salti, pipar og ólífuolíu.
  2. Bakið í elföstu móti í 30-40 mínútur við 190°C. Mæli með að hræra aðeins í á meðan þetta bakast. Mango chutney-sósan passar svo sérlega vel með frönskunum.

Ferskt salat

  1. Skerið gúrku, rauðlauk og spínat smátt. Blandið öllu saman í skál.
  2. Hrærið saman ólífuolíu, safa úr sítrónu, kryddi og ferskum kóríander og blandið saman við salatið.

Mangó chutney-sósa

  1. Blandið öllu hráefninu saman með skeið.
Vefjur í boði Hildar Rutar.
Vefjur í boði Hildar Rutar. mbl.is/Hildur Rut Ingimarsdóttir
Borið fram með fersku salati, mango chutney sósu og sætkartöflufrönskum.
Borið fram með fersku salati, mango chutney sósu og sætkartöflufrönskum. mbl.is/Hildur Rut Ingimarsdóttir
mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert