Plastpokabirgðir Krónunnar að klárast

mbl.is/Ásdís Ásgeirsdóttir

Síðustu plastpokabirgðir Krónunnar eru að klárast þessa dagana og mun Krónan þá hætta sölu burðarplastpoka í verslunum sínum.

Í maí árið 2019 var frumvarp umhverfisráðherra samþykkt með löggjöf sem bannar sölu plastpoka í verslunum frá 1. janúar 2021. Krónan hóf strax undirbúning og er nú að klára upplag sitt af plastpokum og verða ekki fleiri pantaðir.

Áður hafði Krónan hætt notkun hefðbundinna plastpoka og undanfarið ár hefur einungis verið notast við burðarpoka úr sykurreyr. Þá voru gefins smápokar teknir úr grænmetisdeildum og við kassa í byrjun júní 2019.

Í verslunum Krónunnar er því nú einungis að finna fjölnota burðarpoka og pappapoka til sölu við afgreiðslukassa en þá eru jafnframt seldir niðurbrjótanlegir pokar úr maís sem nýst geta sem ruslapokar á heimilum.

Með því að hætta sölu plastburðapokanna á undan áætlun má gera ráð fyrir að það fækki um meira en milljón plastpoka í umferð að því er segir í tilkynningu frá Krónunni.

Ásta S. Fjeldsted, framkvæmdastjóri Krónunnar.
Ásta S. Fjeldsted, framkvæmdastjóri Krónunnar.

„Við erum með skýra stefnu í umhverfismálum og höfum í gegnum árin leitað leiða til að minnka plastnotkun hjá okkur. Við fögnum því þessu skrefi og teljum það í átt til ábyrgðar í umhverfismálum. Við höfum lagt drög að þessu undanfarna mánuði og gert tilraunir því allar verslanir sem opnaðar hafa verið frá 2019 hafa verið plastpokalausar. Við bjóðum upp á úrval af fjölnota burðarpokum og vonum að viðskiptavinir bregðist vel við þessari breytingu með okkur,“ segir Ásta S. Fjeldsted framkvæmdastjóri Krónunnar í fréttatilkynningu.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert