Hamborgarinn sem sagður er ögra bragðlaukunum

Hann heitir Eastwood og er sagður ómótstæðilegur.
Hann heitir Eastwood og er sagður ómótstæðilegur.

Þau stórtíðindi berast að kominn sé á matseðil American Style glænýr hamborgari sem ber hið magnþrungna nafn Eastwood. Hamborgarinn er sagður ögra bragðlaukunum en það voru þeir Viktor Örn Andrésson og Hinrik Lárusson sem settu hamborgarann saman en undanfarið hafa þeir félagar leitt gæða- og vöruþróunarvinnu á American Style og Saffran. 

„Það er gríðarlega gaman að vinna í matseðlinum á Stælnum. Eftir að við fórum yfir öll gæðamál, stækkuðum borgarann, mýktum kjötið og breyttum framsetningunni, þá fengum við svolítið að leika okkur. Hamborgari eins og Eastwood verður til þegar kokkar fá að leika sér,“ segir Hinrik Lárusson brosandi. Og Eastwood er svo sannarlega spennandi. 120 grömm af hágæðaungnautakjöti með stökkum jarðskokkum, lambhagasalati, vorlauk, trufflumajónesi, lauksultu, pikkluðum lauk og oriental dressingu. 

Gamli Stælborgarinn - bara betri

Meistarakokkarnir Viktor Örn og Hinrik Lárusson endurhönnuðu klassíska Stælborgarann á dögunum. Helsta breytingin er að kjötið sem hefur alltaf verið 90 g er nú 120 g. Eins var fitumagnið í kjötinu aukið og er nú 20%. Þá var borgarinn settur í nýtt og enn mýkra kartöfluhamborgarabrauð. „Það sem mér finnst skipta mestu máli er að hamborgarinn sjálfur er orðinn enn safaríkari og ljúffengari en hann var, en samt heldur hann sérkennum sínum. Þetta er sami gamli Stælborgarinn, bara miklu betri,“ segir Hinrik að lokum. 

Samferða Íslendingum í 36 ár

American Style var opnaður í Skipholti þann 15. júní 1985 og verður því 36 ára í ár sem gerir hann að elsta starfandi hamborgarastað landsins. „Allir Íslendingar þekkja gamla góða Stælinn og eiga minningar þaðan. Það er skemmtilegt frá því að segja að þegar ég var ungur peyi í fótbolta hjá Fylki, þá var alltaf farið í lok tímabils í hamborgaraferð á Stælinn í Skipholti. Við fengum merktar peysur sem ég fór helst ekki úr eins og sést á myndinni,“ segir Jóhannes Ásbjörnsson, talsmaður og einn eigenda staðarins.

Jóhannes Ásbjörnsson í American Style peysunni góðu.
Jóhannes Ásbjörnsson í American Style peysunni góðu. Ljósmynd/Aðsend
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert