Sígildir smurostar fá nýtt útlit

Ljósmynd/Aðsend

Dósirnar eru stærri en áður, þéttar og lokast mjög vel sem er gott fyrir vörur með jafnt langt geymsluþol og smurostar hafa. Útlit nýju umbúðanna hefur mælst vel fyrir en þar fá fallegir litir og matarmyndir að njóta sín. Fjórar af átta bragðtegundum eru á leið í verslanir og síðan bætast hinar við koll af kolli fram í mars eftir því sem eldri umbúðabirgðir klárast.

Smurosturinn er afar vinsæll í alls kyns bakstur, brauðrétti og matargerð enda bragðgóður og þægilegur í notkun. Við deilum því með ykkur uppskrift að rúllubrauðinu góða sem er ómissandi í afmælum og hvers kyns veislum.

Ljósmynd/Aðsend
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert