Lúxus súkkulaðikaka með söxuðu súkkulaði & hnetusmjörskremi

Ljósmynd/Val­gerður Gréta Grön­dal

„Þessi kaka er algjörlega stórkostleg og tekur ekki langan tíma að gera. Ég hef alltaf verið mikill aðdáandi þessarar tvennu, súkkulaðis og hnetusmjörs og þessi kaka uppfyllir algerlega allar mínar væntingar. Kakan sjálf er alveg lungamjúk með góðu súkkulaðibragði og kremið er létt með áberandi keim af hnetusmjörinu,“ segir Valla á GRGS.is um þessa súkkulaðiköku sem er svívirðilega góð. 

„Ég nota kakóið frá Nóa Síríus í botninn ásamt klassíska suðusúkkulaðinu og sú tvenna er ekkert minna en stórkostleg í svona súkkulaðikökubakstur."

Lúxus súkkulaðikaka með söxuðu súkkulaði & hnetusmjörskremi

  • 175 g hveiti
  • 130 g púðursykur
  • 3 msk. kakó frá Nóa Síríus
  • 1 tsk. lyftiduft
  • ½ tsk. matarsódi
  • ½ tsk. salt
  • 1 dl súrmjólk
  • 120 ml nýmjólk
  • 1 tsk. vanilludropar
  • 1 dl jurtaolía
  • 1 egg
  • 65 g saxað suðusúkkulaði frá Nóa Síríus

Hnetusmjörskrem

  • 100 g mjúkt smjör
  • 140 g hnetusmjör, fínt
  • 120 g flórsykur
  • ¼ tsk. sjávarsalt
  • 1 tsk. vanilludropar
  • 1-2 msk. nýmjólk

Setjið smjör og hnetusmjör í skál og þeytið vel saman, bætið við flórsykri og salti og hrærið vel. Bætið þá við vanilludropum og mjólk ef þarf. Þeytið kremið mjög vel þannig að það verði mjög létt og ljóst.

Leiðbeiningar

1. Hitið ofninn í 175°C blástur.

2. Setjið öll þurrefni saman í skál og hrærið í með sleif. Setið þá súrmjólk, nýmjólk, vanilludropa, olíu og egg saman við og hrærið þar til deigið er slétt og samfellt. Bætið þá söxuðu súkkulaðinu saman við.

3. Smyrjið eða klæðið með bökunarpappír, ferkantað 20x20cm form eða 22 cm hringlaga form. Hellið deiginu út í og bakið í 20-25 mín ca. Fer eftir ofnum en kakan er tilbúin þegar prjóni sem stungið er í hana kemur hreinn út.

4. Kælið kökuna alveg.

5. Útbúið kremið og smyrjið á kalda kökuna. Stráið söxuðu suðusúkkulaði yfir kremið og jafnvel salthnetum ef þið eigið þær til.

Þessa verðið þið bara að prófa en vara ykkur við, hún er fljót að klárast!

Ljósmynd/Val­gerður Gréta Grön­dal
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert