Kjúklingur í trylltri sósu

Ljósmynd/Gott í matinn

Stundum þarf ekkert að flækja hlutina. Við erum með kjúkling og svo sósu sem tryllir mannskapinn... eða allavega matargesti. Við erum að tala um rjómalagaða bernaise-sósu og við skorum á ykkur að smakka. Það eru nefnilega töluverðar líkur á að þetta verði næsti uppáhalds kjúklingarétturinn ykkar.

Kjúklingur með rjómabernaisesósu

Fyrir fjóra

  • 4 stk. kjúklingabringur
  • 2 msk. smjör til steikingar
  • 500 ml matreiðslurjómi frá Gott í matinn
  • 2 msk. dijon sinnep
  • 4 tsk. estragon
  • 4 tsk. bernaise essens
  • 2 msk. kjúklingakraftur (1 teningur)
  • sjávarsalt og nýmalaður svartur pipar eftir smekk

Tillaga að meðlæti

  • hrísgrjón, steikt eða ferskt grænmeti og heitt snittubrauð

Aðferð:

  1. Hitaðu ofninn í 200°C.
  2. Brúnaðu kjúklinginn í smjöri á báðum hliðum.
  3. Kryddaðu með sjávarsalti og nýmöluðum pipar.
  4. Settu kjúklinginn í eldfast mót og bakaðu í 20 mínútur í ofni þar til hann er fulleldaður.
  5. Helltu matreiðslurjóma í djúpa pönnu, síðan sinnepi, estragoni, kjúklingakrafti og bernaise essens.
  6. Hitaðu upp að suðu, settu kjúklinginn út í og leyfðu að malla í 5 mínútur við lágan hita.
  7. Berðu réttinn fram með hrísgrjónum, steiktu eða fersku grænmeti og heitu snittubrauði.
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert