Mest töfrandi McDonald's staðirnir í heiminum

Á nokkrum stöðum í heiminum er hægt að gæða sér …
Á nokkrum stöðum í heiminum er hægt að gæða sér á McDonald´s hamborgara og frönskum í glæsilegum byggingum sem laða að augað. Samsett mynd

Vá, hvað þetta er fallegur McDonald's staður.“ Þetta er örugglega setning sem fæstir láta hafa eftir sér þegar hin vinsæla McDonald’s veitingahúskeðja er heimsótt. Alla jafna ertu líklega að koma við og fá þér hinn sígilda og klassíska hamborgara og franskar en ekki endilega með hugann við heillandi arkitektúr. En viti menn, það er hægt að sameina þetta tvennt. Eins og fram kemur á arkitektúrs- og lífsstílssíðunni AD er hægt á nokkrum stöðum í heiminum að upplifa fallegan arkitektúr, ýmist módernisma eða gamlar sögulegar byggingar sem einkenna borgarmyndina á sama tíma og þú gæðir þér á McDonald‘s borgara og frönskum kartöflum.

Hér fyrir neðan má sjá nokkra af fallegustu McDonald's stöðunum í heiminum.

Ljósmynd/Andrey Khrobostov/Alamy Stock Photo

Porto - Portúgal

Oft lýst sem fallegasta McDonald's stað í heimi. Hann er staðsettur í gömlu Cafe Imperial byggingunni, frægu kaffihúsi sem inniheldur glæsilega steinda glerglugga, kristalsljósakrónur og ótrúlega fallegan bogadreginn inngang.

Ljósmynd/Marshall Ikonography/Alamy Stock Photo

Búdapest - Ungverjaland

Þessi McDonald's er staðsettur á járnbrautarstöð í Búdapest og er tilvalinn áningarstaður fyrir hamborgara og skemmtilega matarupplifun. Bogalaga loftið og falleg mótun á því ásamt risastórum bogadregnum gluggum veita sérstakan fagurfræðilegan áhuga matargesta.

Ljósmynd/Ryhor Bruyeu/Alamy Stock Photo

Batumi - Georgía

Fyrir aðdáendur módernísks arkitektúrs þá er þessi McDonald's staður með glerkúpu nauðsynlegur heim að sækja í Georgíu.

Ljósmynd/Sofia Pereira/StockPhotosArt-Urban Landscape/Alamy Stock Photo

Lissabon - Portúgal

Heillandi bleikri framhlið með fallega skreyttum svölum af minnstu gerð og einföldum veitingastað, hefur McDonald's tekist hér að breyta í ferðamannastað. Staðurinn hefur mikið aðdráttarafl, jafnvel eins og innblásið listaverk.

Ljósmynd/Robert Evans

Rotterdam - Hollandi

Staðurinn veitir næstum ótakmarkað útsýni bæði inn og út af veitingastaðnum og innan staðarins er fallegur bogadreginn stigi.

Ljósmynd/Tibor Ksa/Alamy Photos

Debrecen - Ungverjaland

Falleg bygging sem dregur að sér athygli og setur mark sitt á vörumerkið. 

Ljósmynd/ MediaNews Group/Orange County Register

 

Downey- Kalifornía í Bandaríkjunum

Elsti McDonald's í heimi með upprunalegum gullboga vörumerkisins.

Ljósmynd/Glenn Nagel/Alamy Stock Photo

Roswell - Nýja Mexíkó

Roswell er oft sögð vera „höfuðborg geimvera“ og McDonald´s keðjan er þar hvergi undanskilin og byggingin minnir á geimfar.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert