Stökkt taco með bræddum osti sem kitlar bragðlaukana

Girnilegt stökkt taco með bræddum osti, baunabuffi og tahini hvítlauksssósu …
Girnilegt stökkt taco með bræddum osti, baunabuffi og tahini hvítlauksssósu sem kitlar bragðlaukana. Ljósmynd/Valla

Þetta stökka taco með bræddum osti, baunabuffi og tahini hvítlaukssósu er ótrúlega ljúffengt og gleður bragðlaukana. Svo er það vegan en samt fyrir alla hvort sem þeir eru vegan eður ei. Valgerður Gréta Gröndal, ávallt kölluð Valla, sem heldur úti uppskriftasíðunni Valla Gröndal á heiðurinn að þessari uppskrift. Valla segir að það sé ekki sjálfgefið að finna góðan vegan ost en hún hafið fundið ost sem hún hafi fallið fyrir og notað í þessa uppskrift. Vegan Applewood osturinn er svo brilljant og góður. Mjúkur með dálítið reyktu bragði og passar sérstaklega vel með mexíkóskum mat,“ segir Valla og mælir eindregið með prófa þetta taco.

Stökkt taco með bræddum osti, baunabuffi og tahini hvítlaukssósu

  • 2 msk. ólífuolía
  • 8 litlar taco kökur
  • 8 sneiðar Applewood vegan ostur
  • 4 baunabuff að eigin vali 
  • ferskt rauðkál, smátt skorið
  • gulrætur, fínt skornar
  • jöklasalat, fínt skorið
  • tómatar, saxaðir smátt
  • ferskt jalapeno, smátt saxað
  • salsa sósa
  • jógúrtsósa
  • tahini hvítlaukssósa

Aðferð og samsetning:

  1. Útbúið sósuna og setjið í kæli á meðan taco-ið er gert, sjá uppskrift fyrir neðan.
  2. Skerið grænmetið og setjið til hliðar.
  3. Hitið eða steikið baunabuffin samkvæmt leiðbeiningum, skerið þau svo í litla bita.
  4. Setjið ólífuolíu á pönnu og steikið taco kökurnar, setjið það magn á pönnuna sem kemst fyrir. Snúið þeim við þegar þær eru farnar að brúnast og setjið eina sneið af osti á hverja köku. Þegar þær eru farnar að brúnast vel á hliðinni sem snýr nú niður snúið þá aftur við þannig að ostahliðin snýr beint niður á pönnuna. Steikið ostinn í nokkrar sekúndur og takið þá kökurnar af pönnunni og fyllið.
  5. Setjið fyrst salsasósu á kökuna, því næst grænmeti, baunabuff, toppið með hvítlaukssósunni og söxuðu jalapeno

Tahini hvítlaukssósa

  • 1 dós Oatly sýrður rjómi 
  • 1 msk. tahini, t.d. frá Rapunzel
  • 2 hvítlauksgeirar, kramdir
  • 1 tsk. þurrkuð kóríanderlauf
  • 1 tsk. hlynsíróp
  • 1 tsk. límónusafi
  • sjávarsalt eftir smekk

Aðferð:

  1. Hrærið öllu saman og kælið.
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert