Sörur með möndlulíkjör! Má það?

Hinar dásamlegu sörur eiga fastan sess í hjörtum landsmanna. Algengt …
Hinar dásamlegu sörur eiga fastan sess í hjörtum landsmanna. Algengt er að fólk komist hreinlega ekki í al- mennilegt jólaskap fyrr en möndlurn- ar hafa verið hakkaðar og eggja- hvíturnar stífþeyttar. Hvernig væri að baka Disaronno-sörur þessi jólin? mbl.is/Marta María Winkel Jónasdóttir

Hinar dásamlegu sörur eiga fastan sess í hjörtum landsmanna. Algengt er að fólk komist hreinlega ekki í almennilegt jólaskap fyrr en möndlurnar hafa verið hakkaðar og eggjahvíturnar stífþeyttar. Hvernig væri að baka Disaronno-sörur þessi jólin?

Diaronno líkjör er mjög góður í sörukrem.
Diaronno líkjör er mjög góður í sörukrem. Fito Garcia/Unsplash

Íslendingar kallasörur barasörur en þær eru ættaðar frá Danmörku og fór fyrsta bökunarplatan inn í ofn í kringum 1911. Danskir kökusérfræðingar segja að bakari nokkur, Johannes Steen, hafi heillast upp úr skónum af franskri leikkonu. Hún hét SarahBernhardt og eftir að hafa séð hana á sviði ákvað bakarasnúðurinn að búa til kökur sem vísuðu í frönsku makkarónurnar, sem eru löngu heimsfrægar, og bæta við dönskum áhrifum í formi smjörkrems og súkkulaðis. Við munum líklega flest eftir því hvenær við smökkuðum fyrstusöruna og einhvern veginn var þetta alltaf þannig að sem barn mátti maður ekki borðasörur eins og popp. Ein átti að duga en auðvitað er ekkert hægt að borða bara einasöru.

Hér má finna auðvelda útgáfu af sörum en í stað kaffikrems kemur möndlulíkjörinn Disaronno við sögu. Bakarasnúðurinn hann Johannes Steen hefði örugglega frekar notað hann í kremið en kaffi ef hann hefði haft hann við höndina. Eina sem fólk verður að gæta að í sörubakstrinum er að setja Disaronno bara út í kremið – ekki drekka það á meðan.

Disaronno-sörur (um það bil 60 stykki)

  • 200 g möndlur
  • 180 g flórsykur
  • 3 eggjahvítur
  • salt á hnífsoddi

Aðferð

  1. Stillið ofninn á 180°.
  2. Byrjið á því að hakka möndlurnar í hakkavél – ekki setja þær í blandara því þá fer olían úr þeim sem gerir deigið ríkulegra. Ef þær eru hakkaðar hægt og rólega þá verða sörurnar upp á 10.
  3. Stífþeytið eggjahvítur og bætið flórsykrinum varlega út í.
  4. Þá er möndlunum blandað varlega saman og svo er gott að salta smá. Það má sleppa því.
  5. Setjið bökunarpappír á bökunarplötu.
  6. Vandið ykkur þegar þið setjið deigið á plötuna og reynið að hafa kökurnar eins litlar og hægt er (u.þ.b. 1 tsk. af deigi)
  7. Bakið hverja plötu 12 mínútur og ekki opna ofninn á meðan – þetta er heilög stund.

Möndlukrem

  • 6 eggjarauður
  • 450 g flórsykur
  • 6-8 msk. Disaronno-líkjör. Má vera meira ef fólk vill.

Aðferð

  1. Þeytið eggjarauðurnar vel og vandlega. Sigtið flórsykurinn og bætið út í eggjarauðurnar.
  2. Þá líkjörnum bætt út í og smakkað til. Gott er að setja kremið í frysti í um 15 mínútur áður en það er sett á kökurnar ef það er með linara móti. Þá má líka bæta smá flórsykri út í til að gera það stífara.
  3. Þegar kremið er komið á sörurnar er best að frysta þær þannig að þær séu frosnar í gegn áður en þær eru hjúpaðar með dökku súkkulaði. Lífræna súkkulaðið frá Änglamark er mjög gott á sörurnar og gefur þeim fallega áferð.
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert