Heitur mexíkóskur réttur með kjúklingi og hrísgrjónum

Einfaldur og fljótlegur kjúklingaréttur sem á vel við í miðri …
Einfaldur og fljótlegur kjúklingaréttur sem á vel við í miðri viku. Ljósmynd/Thelma Þorbergsdóttir

Hér er á ferðinni einfaldur og fljótlegur kjúklingaréttur sem kemur úr smiðju Thelmu Þorbergsdóttur matgæðings og er tilvalin kvöldmáltíð þegar lítill tími gefst til að elda. Uppskriftina gerði hún fyrir uppskriftavefinn Gott í matinn. Rétturinn er mildur, en fyrir þá sem vilja láta rífa aðeins í bragðlaukana er hægt að bæta fersku chilli eða meira chillikryddi saman við hrísgrjónin og kjúklinginn. Tilvalið er að bera réttinn fram með sýrðum rjóma og jafnvel hafa smá flögur í skál með ef vill.

Kjúklingarétturinn er með mexíkósku ívafi og hægt er að gera …
Kjúklingarétturinn er með mexíkósku ívafi og hægt er að gera hann sterkari ef vill. Ljósmynd/Thelma Þorbergsdóttir

Mexíkóskur kjúklingaréttur með hrísgrjónum

Fyrir 6

  • 4 dl hrísgrjón
  • 1 tsk. chilli
  • 1 tsk. paprikukrydd
  • 1 tsk. cumin
  • 1 stk. kjúklingakraftur
  • 500 g eldaður kjúklingur, eða 3 bringur eldaðar og rifnar niður
  • 400 g refried-baunir í dós
  • 250 g Mexíkósk ostablanda frá Gott í matinn
  • 400 g taco-sósa
  • 200 g rjómaostur með graslauk og lauk frá MS
  • 150 g gular baunir
  • 1 tsk. salt
  • ½  tsk. svartur pipar
  • Nachos-flögur með ostabragði eftir smekk
  • Ferskt kóríander eftir smekk

Aðferð:

  1. Setjið 4 dl af hrísgrjónum í pott ásamt 8 dl af vatni.
  2. Kryddið með chilli, papriku, cumin og kjúklingakrafti.
  3. Hrærið þar til allt hefur blandast saman.
  4. Látið suðuna koma upp á hrísgrjónunum. Þegar helmingurinn af vatninu er eftir á hrísgrjónunum setjið þá lokið yfir og slökkvið undir pottinum og látið þau eldast í gufunni.
  5. Skerið kjúklinginn smátt niður og setjið í skál ásamt baununum, helmingnum af ostablöndunni, taco-sósu, rjómaosti og gulum baunum og hrærið.
  6. Bætið hrísgrjónunum saman við ásamt salti og pipar og hrærið þar til allt hefur blandast vel saman.
  7. Setjið blönduna í eldfast mót og inn í ofn við 180°C hita í 20 mínútur.
  8. Takið réttinn út, setjið það sem eftir er af ostinum og mulið nachos yfir réttinn.
  9. Bakið í aðrar 10 mínútur eða þar til osturinn hefur náð að bráðna alveg.
  10. Skerið niður ferskan kóríander og dreifið yfir réttinn og berið fram heitan.
  11. Ef þið viljið vilja flýta fyrir má sjóða hrísgrjónin daginn áður, eða gera allan réttinn daginn áður og hita hann upp.
  12. Einnig er gott að bera réttinn fram með sýrðum rjóma.
  13. Njótið vel.
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert