Móbergs kaffibollurnar ofan úr fjalli

Girnilegar þessar dásamlegu Móbergs kaffibollur sem hafa heillað kaffigesti upp …
Girnilegar þessar dásamlegu Móbergs kaffibollur sem hafa heillað kaffigesti upp úr skónum. Samsett mynd

Það er fátt betra en að fá nýbakaðar kræsingar með kaffinu, alveg sama hvaða dagur er. Þá má nefnilega alveg njóta. Brynja Dadda Sverrisdóttir ástríðubakari og handverkskona hefur mikið dálæti af hvers kyns matargerð, bakstri og ræktun grænmetis- og matjurta og eyðir ófáum stundum í eldhúsinu í sveitina þar sem hún býr. Hún leggur mikið upp úr því að bjóða upp á heimabakaðar kræsingar, bakaðar af ást og natni. „Sérstaklega hef ég unun af því af að vera eldhúsinu hér húsinu okkar Móbergi upp í fjallinu í Kjósinni,“ segir Brynja Dadda. Þar fæ ég innblástur fyrir baksturinn og nýt þess að töfra fram kræsingar fyrir fjölskylduna og gesti sem koma að heimsækja okkur. Móbergið er griðastaður þeirra hjóna þar sem þau bæði njóta sín í ræktun, matargerð, bakstri og sköpun. Brynja Dadda rekur meðal annars lítið fjölskyldufyrirtæki ásamt eiginmanni sínum Hafþóri, Bjarnasyni, smíðaverkstæðið Hnyðju, þar sem Hafþór sérhæfir sig í að smíða íslenskt handverk úr við.

Brynja Dadda ber kaffibollurnar gjarnan fram á fallegu viðarbretti sem …
Brynja Dadda ber kaffibollurnar gjarnan fram á fallegu viðarbretti sem er handgert að eiginmanni hennar Hafþóri. Ljósmynd/Brynja Dadda Sverrisdóttir

Kaffibollur úr fjallinu

Brynja Dadda deilir hér með lesendum uppskrift að hinum vinsælu Móbergs kaffibollum sem hafa heillað gesti hennar upp úr skónum undanfarið og undirrituð hefur verið svo heppin að fá að heimsækja Brynju Döddu í eldhúsið og njóta kræsinga hennar sem allar eru syndsamlega ljúffengar og þá svo sannarlega við þessa kaffibollur úr fjallinu. „Upplagt er að setja kökur í frost án súkkulaðibráðar. Þær eru fljótar að þiðna á borði á meðan súkkulaði er brætt. Reddar kaffitíma eða þegar óvæntir gestir ber að garði,“ segir Brynja Dadda og brosir.

Kaffibollur úr Móberginu gleðja matarhjartað.
Kaffibollur úr Móberginu gleðja matarhjartað. Ljósmynd/Brynja Dadda Sverrisdóttir

Móbergs kaffibollur

  • 200 g mjúkt smjör
  • 200 g sykur
  • 3 egg, setjið eitt í einu út þegar hrært er.
  • 1 tsk. sítrónusafi eða ½ tsk. sítrónudropar
  • 1 tsk. vanilludropar
  • 400 g hveiti
  • 1 msk. lyftiduft
  • 1 dl mjólk
  • 200 g karamellusúkkulaðidropar (hérna má að sjálfsögðu leika sér með alls konar súkkulaðidropa eða karamellukurl )

Skreytt ofan á eftir bakstur

  • 100-200 g suðusúkkulaði ef vill 

Aðferð:

  1. Byrjið á því að hita ofninn í 180°C hita, með blæstri.
  2. Setjið smjör og sykur saman í hrærivélaskál og þeytið vel saman.
  3. Bætið síðan einu eggi út í einu og hrærið vel.
  4. Blandið restinni af hráefnunum saman við nema súkkulaðinu og hrærið vel.
  5. Bætið loks súkkulaðidropunum saman við og hrærið létt með sleif.
  6. Takið til ofnplötu klædda bökunarpappír.
  7. Setjið síðan á plötu deig með stórri skeið, til dæmis ísskeið, salatskeið, þessar eiga að vera heldur stærri en smákökur.
  8. Setjið ofnplötuna inn í ofn og bakið við 180°C hita á blæstri í 10-15 mínútur. Fylgjast vel með þar sem ofnar eru misjafnir, kanturinn á aðeins að byrja að dökkna eru kökurnar tilbúnar.
  9. Berið fram volgar eða kælið aðeins ef ykkur langar að setja á þær bráðið súkkulaði og berið þær þá þannig fram.
  10. Hægt er að setja bráðið suðusúkkulaði ofan á hverja köku og þá má einnig leika sér með alls konar súkkulaðibráð sem ykkur líkar best.
  11. Njótið.
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert