Tómatsúpan sem Helga Þóra elskar

Helga Þóra Bjarnadóttir deildi uppskrift að einfaldri og bragðgóðri tómatsúpu …
Helga Þóra Bjarnadóttir deildi uppskrift að einfaldri og bragðgóðri tómatsúpu á TikTok. Samsett mynd

Helga Þóra Bjarnadóttir, dóttir Bjarna Benediktssonar forsætisráðherra Íslands, deildi á dögunum fljótlegri uppskrift að ljúffengri tómatsúpu með fylgjendum sínum á TikTok. Súpuna útbjó hún fyrir kærasta sinn og vinkonu sem virtust alsæl með útkomuna.

Uppskriftin er einföld en bragðgóð og er tilvalin bæði sem hádegis- og kvöldverður. Þeir sem vilja taka réttin einu skrefi lengra geta borið hann fram með gómsætu súrdeigsbrauði.

Fljótleg tómatsúpa að hætti Helgu Þóru

Hráefni:

  • 7 stk. ferskir tómatar
  • 2 stk. laukur
  • 1 stk. hvítur laukur
  • 1 stk. hvítlaukur
  • 2  stk. kjúklingakraftur (teningar)
  • 1msk. tómatpúrra
  • 500 ml rjómi
  • 1 L vatn
  • Handfylli af ferskri basilíku
  • Salt og pipar eftir smekk (hægt að bæta við kryddum eins og timjan, oreganó, paprikukryddi)
  • Smjör 
  • Olía

Aðferð:

  1. Steikið hvítlauk upp úr smjöri og olíu og bætið teningum af kjúklingakrafti út í.
  2. Skerið tómatana í báta og bætið út í ásamt lauki, basilíku, tómatpúrru, kryddblöndu að eigin vali og vatni. 
  3. Látið allt malla saman undir loki í 25 mínútur. 
  4. Notið töfrasprota eða matvinnsluvél til að mauka súpuna. 
  5. Bætið rjóma út í súpuna og látið malla í smá stund áður en súpan er toppuð með basilíkulaufum og borin fram. 
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert