Björn Ingi Hrafnsson giftir sig

Kolfinna Von og Björn Ingi eru á leið í hjónaband
Kolfinna Von og Björn Ingi eru á leið í hjónaband Ljósmynd/Af Facebook

Björn Ingi Hrafnsson, stjórnarformaður DV og Pressunnar, mun á næstunni ganga að eiga Kolfinnu Von Arnardóttur en Smartlandið hefur þetta eftir áreiðanlegum heimildum.

Nýverið var greint frá því að Björn Ingi og Kolfinna Von hefðu skráð sig í samband á Facebook og herma heimildir Smartlands nú að stóra stundin muni renna upp þann 13. júní næstkomandi. Fer sjálf athöfnin fram í Hallgrímskirkju og mun biskup Íslands, Agnes M. Sigurðardóttir, gefa þau saman.

Kolfinna Von er 27 ára almannatengill og rekur hún fyrirtækið Artikolo auk þess sem hún skrifar pistla í DV.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál