Sakar Helga í Góu um að hafa áreitt sig kynferðislega

Katrín Lóa Kristrúnardóttir segir Helga Vilhjálmsson hafa áreitt sig kynferðislega …
Katrín Lóa Kristrúnardóttir segir Helga Vilhjálmsson hafa áreitt sig kynferðislega í um eitt og hálft ár. Skjáskot/YouTube

Katrín Lóa Kristrúnardóttir segir Helga Vilhjálmsson, sem er oft kenndur við Góu, hafa ítrekað áreitt sig kynferðislega eftir að hann lánaði henni fimm milljónir króna upp í útborgun á íbúð. Katrín Lóa sagði sögu sína í þættinum Eigin konur, hlaðvarpi Eddu Falak.

Stundin fjallar um málið og birtir einnig yfirlýsingu frá Helga þar sem hann segist hafa gert mistök í samningi sínum við Katrínu Lóu og biðst afsökunar á framferði sínu.

Katrín Lóa segir áreitnina hafa byrjað árið 2018 þegar hún vann í sjoppu í eigu Helga, Skalla á Selfossi. Hún segir það hafa staðið yfir í um eitt og hálft ár. Hún hafi svo sagt upp störfum nokkrum mánuðum eftir að Helgi hætti að áreita hana kynferðislega.

Hafði hún heyrt að Helgi lánaði stundum starfsfólki fyrir íbúðarkaupum sem yrði svo síðar dregið af mánaðarlaunum þeirra. Henni bauðst slíkt lán og samþykkti hún það. 

Aðeins munnlegur samningur

Hún segir greiðslurnar hafa borist beint frá Helga, en ekki fyrirtækinu. Ekki hafi verið til neinn formlegur samningur um lánið heldur aðeins munnlegur samningur. 

Viku eftir að Katrín Lóa skrifaði undir kaupsamninginn segir hún Helga hafa brotið á sér. Segir hún meint brot hafa gerst í sjoppunni, inni á skrifstofu eftir vakt. Hún segir hann hafa komið inn og sett hendur inn á bol hennar. 

Helgi Vilhjálmsson sendi yfirlýsingu til Stundarinnar þar sem hann biðst …
Helgi Vilhjálmsson sendi yfirlýsingu til Stundarinnar þar sem hann biðst afsökunar á framferði sínu gagnvart Katrínu Lóu. mbl.is/Golli

„Og svo reif hann bolinn upp og ég var ekki í topp. Þetta voru þröngir vinnubolir og ég var bara á brjóstunum innanundir. Og þarna sat ég og var bara í sjokki,“ sagði hún.

Bróðir Katrínar Lóu, Heimir Ingi, staðfestir frásögn hennar við Stundina, en hann var einnig að vinna á Skalla þetta kvöld. Hann segir Katrínu Lóu hafa brotnað niður og sagt frá hvað gerðist. 

Katrín Lóa segist hafa upplifað að hún gæti ekki gert neitt þar sem hann hafi nýverið veitt henni lán til að kaupa íbúð. „Hann var samt ekki að kaupa rétt á mér þótt hann hafi lánað mér pening,“ sagði Katrín Lóa.

Þegar hún hafi reynt að eiga orð við Helga hafi hann sagði að „það mætti ekkert í dag“.

Glímt við kvíða og þunglyndi

Katrín Lóa segir ítrekaða áreitni Helga hafa haft mikil áhrif á hana. Hún hafi glímt við þunglyndi, kvíða og sjálfsvígshugsanir.

„Alltaf þegar ég kom heim á kvöldin þá brotnaði ég niður. Grét mig í svefn þegar mér tókst að sofna,“ sagði Katrín Lóa.

Hún segist vilja opna sig um reynslu sína til þess að fólk viti hvernig maður Helgi sé. 

„Og ef það eru einhverjar þarna úti sem hafa lent í honum og hafa aldrei talað um það, þá kannski hjálpar þetta þeim.“

Brot úr þættinum má sjá hér fyrir neðan.

 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál