Við Héðinsbraut á Húsavík stendur fallegt og reisulegt hús. Aðdáendur eurovisionkvikmyndar Wills Ferrells, Eurovision Song Contest: The Story of Fire Sage, ættu að kannast við húsið en í kvikmyndinni er það heimili Lars sjálfs.
Húsið er byggt árið 1903 og í því eru tvær íbúðir en íbúðin sem um ræðir er á efri hæð. Húsið er hannað í einstaklega fallegum stíl líkt og mörg hús frá þessum tíma. Franskir hvítmálaðir gluggar eru á húsinu sem setja svip sinn á það.
Þrjú svefnherbergi eru í íbúðinni, tvö í risinu og eitt á miðhæðinni þar sem einnig er að finna eldhús, baðherbergi og stofu.
Húsið stendur á horni Héðinsbrautar og vegarins niður að höfninni og er með fallegu útsýni niður að hafnarsvæðinu, sem einnig bregður fyrir í kvikmyndinni.
Að því er fram kemur í Sögu Húsavíkur byggðu bræðurnir Aðalsteinn og Páll Kristjánsson húsið. Þeir bræður voru ættaðir úr Mývatnssveit og giftir systrunum Helgu og Þóru Guðnadætrum. Um árabil ráku Aðalsteinn og Páll verslun í austurhluta hússins. Húsið var lengi kallað Aðalsteinshús og svo seinna Pálshús.