Ágúst lýtalæknir keypti einbýli í Fossvogi

Ágúst Birgisson lýtalæknir hefur fest kaup á fallegu einbýlishúsi í …
Ágúst Birgisson lýtalæknir hefur fest kaup á fallegu einbýlishúsi í Reykjavík. Samsett mynd

Ágúst Birgisson lýtalæknir hefur fest kaup á einbýlishúsi við Láland í Reykjavík. Húsið er 210,5fm að stærð og var byggt 1978. Fjallað var um húsið þegar það fór á sölu síðasta sumar en það var að mestu í upprunalegu ástandi. Það er hraunað að utan með flötu þaki. Húsið stendur á skjólsömum stað í veðursældinni sem ríkir í Fossvoginum í Reykjavík. Hann greiddi 167.500.000 kr. fyrir húsið. 

Ágúst bjó áður í Arnarnesinu en eftir að hann opnaði læknastofur við Efstaleiti í Reykjavík þá lá beinast við að reyna að flytjast nær vinnustaðnum. 

Smartland óskar Ágústi til hamingju með húsið! 

Húsið er við Láland í 108 Reykjavík.
Húsið er við Láland í 108 Reykjavík.
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál