Steven og Heiður Ósk selja eftir sambandsslit

Steven Lennon og Heiður Ósk Eggertsdóttir hafa sett fallega íbúð …
Steven Lennon og Heiður Ósk Eggertsdóttir hafa sett fallega íbúð sína í Hafnarfirði á sölu. Samsett mynd

Förðunarfræðingurinn Heiður Ósk Eggertsdóttir og knattspyrnumaðurinn Steven Lennon hafa sett fallega íbúð sína í Hafnarfirði á sölu. Þau ákváðu nýverið að fara hvort í sína áttina eftir níu ára samband, en þau eiga saman einn son. 

Heiður hefur getið sér gott orð í förðunarheiminum. Hún er eigandi Reykjavík Makeup School og HI beauty ásamt Ingunni Sigurðardóttur. Nýverið gáfu vinkonurnar svo út fyrstu vörurnar undir eigin snyrtivörumerki sem kallast Chilli in June. 

Steven á að baki langan og farsælan knattspyrnuferil, en hann lagði skóna á hilluna í byrjun febrúar. Hann spilaði í þrettán ár á Íslandi, fyrst með Fram í þrjú ár og síðan með FH í tíu ár. Steven er í fjórða til fimmta sæti yfir markahæstu leikmenn efstu deildar karla, en hann skoraði 101 mark í 215 leikjum í efstu deild og varð Íslandsmeistari með FH árin 2015 og 2016.

Í stofunni má sjá falleg húsgögn og muni sem skapa …
Í stofunni má sjá falleg húsgögn og muni sem skapa notalega stemningu í rýminu. Ljósmynd/Af fasteignavef mbl.is
Stór spegill setur svip sinn á rýmið.
Stór spegill setur svip sinn á rýmið. Ljósmynd/Af fasteignavef mbl.is

Hlýleg litapalletta í forgrunni

Eignin sem um ræðir er 122 fm að stærð og er á jarðhæð í þríbýlishúsi sem reist var árið 1966. Hún hefur verið innréttuð á sjarmerandi máta og státar af þremur svefnherbergjum og einu baðherbergi. 

Stofa og borðstofa eru samliggjandi í opnu rými með stórum gluggum sem hleypa mikilli birtu inn. Á gólfi má sjá fallegt fiskibeinaparket sem tónar vel við ljósa litapallettu sem flæðir í gegnum íbúðina. Í borðstofunni má svo sjá formfagra hönnunarljós Vertigo úr smiðju Constance Guisset.

Í eldhúsinu eru hlýir tónar allsráðandi, en þar má sjá U-laga innréttingu með efri skápum á einum veggi. Skemmtileg kalkáferð á hliðum innréttingarinnar, borðplötu og hluta veggja setja svip sinn á rýmið og búa til skemmtilegan karakter. 

Sjá á fasteignavef mbl.is: Arnarhraun 24

Í borðstofunni má sjá fallegt hönnunarljós sem grípur augað.
Í borðstofunni má sjá fallegt hönnunarljós sem grípur augað. Ljósmynd/Af fasteignavef mbl.is
Kalkáferðin býr til skemmtilega stemningu í eldhúsinu.
Kalkáferðin býr til skemmtilega stemningu í eldhúsinu. Ljósmynd/Af fasteignavef mbl.is
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert
Loka

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

endurskoðandi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

ráðgjafi hjá Fyrsta skrefinu og umsjónarmaður Meðvirknipodcastsins

svarar spurningum um lögfræðileg mál

lýtalæknir svarar spurningum lesenda

fasteignasali svarar spurningum lesenda