Jakob Frímann í það heilaga

Birna Rún Gísladóttir, Katrín Borg, Jarún Júlía og Jakob Frímann …
Birna Rún Gísladóttir, Katrín Borg, Jarún Júlía og Jakob Frímann Magnússon.

Jakob Frímann Magnússon og unnusta hans, Birna Rún Gísladóttir, ætla að ganga í hjónaband 4. maí næstkomandi. Það kemur ekki á óvart að sá dagur hafi orðið fyrir valinu því parið á sama afmælisdag. Hann verður sextugur 4. maí og hún fertug.

Vinkonur Birnu Rúnar komu henni á óvart á gærdag og var hún gæsuð með stæl. Vinkonurnar fóru meðal annars með hana á Slippbarinn og fleiri staði og var gleðin við völd.

Saman eiga Birna Rún og Jakob Frímann tvær dætur, Jarúnu Júlíu og Katrínu Borg.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál