Júlíana Sara sagði já á gamlársdag

Júlíana Sara Gunnarsdóttir og Andri Jóhannesson eru trúlofuð.
Júlíana Sara Gunnarsdóttir og Andri Jóhannesson eru trúlofuð. Skjáskot/Instagram

Leikkonan og handritshöfundurinn Júlíana Sara Gunnarsdóttir og flugmaðurinn Andri Jóhannesson trúlofuðu sig á gamlársdag. 

Júlíana Sara er einn höfunda Áramótaskaupsins 2023, en hún er líklega hve þekktust fyrir hlutverk sitt í gamanþáttunum Þær tvær og Venjulegt fólk. Andri er flugmaður hjá Landhelgisgæslunni.

„Gamlársdagur var fullkominn“

Parið tilkynnti trúlofunina með sameiginlegri færslu á Instagram, en með færslunni birtu þau fallega myndaröð. „Allan daginn og alltaf JÁ. Gamlársdagur var fullkominn,“ skrifuðu þau.

Júlíana Sara og Andri hafa verið saman frá árinu 2019, en þau eiga tvö börn hvort úr fyrri samböndum. 

Smartland óskar þeim innilega til hamingju með ástina!

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál