Raunveruleikaþáttastjarnan Kylie Jenner getur seint talist vera umhverfisvæn ef marka má samfélagsmiðla hennar. Jenner er í raun andstaðan við það sem er í tísku núna, mínimalískan lífsstíl og endurvinnslu. Eitt má hún þó eiga að hún klæðist af og til notuðum fötum. Það eru þó ekki hvaða föt sem er heldur hátískuföt sem sést hafa á tískupöllum.
Fyrr í vikunni birti Jenner mynd af sér í frægum Chanel-baðfötum sem engin önnur en Naomi Campbell klæddist á tískupallinum árið 1994.
Í sömu viku birti hún mynd af sér í sundbol og leggings frá Versace. Settið er úr vor- og sumarlínu Versace árið 1991.
Bíkiníið frá Chanel og settið frá Versace er því töluvert eldra en raunveruleikaþáttastjarnan, sem er fædd árið 1997.
Jenner sleikir sólina í Karíbahafinu um þessar mundir, en þangað flaug hún á sérmerktri einkaþotu sem er alls ekki umhverfisvænt. Í ferðinni hefur hún svo deilt myndum af nýjustu húðlínu Kylie Cosmetics, Kylie Skin.
Það er þó hægt að fá lánaða eina blaðsíðu úr bók Jenner og versla fleiri notuð föt.