Sér eftir að hafa notað „of mikið“ af fyllingarefnum

Leikkonan Courteney Cox sér eftir að hafa notað fyllingarefni og …
Leikkonan Courteney Cox sér eftir að hafa notað fyllingarefni og hún hefur nú látið leysa þau upp. LEON BENNETT

Leikkonan Courteney Cox segist hafa notað „of mikið“ af fyllingarefnum í andlitið á sér og að hún hafi á endanum litið „mjög undarlega“ út. 

Í nýjasta þætti hlaðvarpsins Gloss Angeles talar Cox opinskátt um ofnotkun sína á fyllingarefnum í andlitið á sér og viðurkennir að það sé hennar stærsta eftirsjá þegar kemur að útlitinu. 

„Þetta eru dómínóáhrif. Þú áttar þig ekki á því að þú lítur skringilega út, svo þú heldur bara áfram að gera meira vegna þess að þér finnst þú líta eðlilega út,“ útskýrði Cox í þættinum. 

Laus við fyllingarefnin í dag

Hún viðurkennir að hafa á tímabili notað „of mikið af fyllingarefnum“ í andlitið á sér og hafi á endanum áttað sig á því að hún „þyrfti að láta leysa þau upp“. 

„Guði sér lof að þau séu uppleysanleg. Ég klúðraði miklu með fyllingarefnum og núna, sem betur fer, get ég snúið því við að mestu,“ bætti hún við. 

Í upphafi ákvað Cox að fá sér fyllingarefni í von um að sporna við öldrun í andliti, en í dag segir Cox hafa allt aðra sýn á öldrun. „Það að ég hafi haldið að ég væri að eldast þegar ég var enn mjög ung, það var bara bömmer og tímasóun,“ útskýrði Cox.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál