Bjarkey á tvær eins skyrtur í sitthvorum litnum

Bjarkey Olsen Gunnarsdóttir var í þægilegri blússu í vikunni. Hún …
Bjarkey Olsen Gunnarsdóttir var í þægilegri blússu í vikunni. Hún á bæði rauða og græna. Samsett mynd

Bjarkey Olsen Gunnarsdóttir er ein af stjörnum vikunnar en hún varð ráðherra í fyrsta sinn í vikunni. Bjarkey kann greinilega að meta fallegan og litríkan klæðnað og er töffari inn við beinið. 

Tvær eins

Þegar það er mikið að gera er gott að eiga nokkrar útgáfur af sömu flíkinni. Bjarkey á bæði græna og rauða útgáfu af sömu skyrtunni. Skyrtan góða glansar og er með rykkingum. Rykkingarnar voru áberandi á tíunda áratug síðustu aldar. Tískan frá þessum tíma hefur verið í tísku að undanförnu og hefur Bjarkey greinilega fallið fyrir henni. Rykkingarnar geta gert flíkur mjög klæðilegar og ýtt undir kvenlegan vöxt. 

Bjarkey tók við lyklunum af Svandísi Svavarsdóttur í grænni blússu.
Bjarkey tók við lyklunum af Svandísi Svavarsdóttur í grænni blússu. mbl.is/Eggert Jóhannesson
Bjarkey Olsen Gunnarsdóttir á fundi ríkisstjórnar í rauðri blússu, stuttu …
Bjarkey Olsen Gunnarsdóttir á fundi ríkisstjórnar í rauðri blússu, stuttu svörtu pilsi og í rauðum skóm í stíl við skyrtuna. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Mynstur eru skemmtileg

Þegar ríkisstjórn Bjarna Benediktssonar mætti á Bessastaði í vikunni var Bjarkey í fallegum sparikjól með mynstri sem tónaði vel við hárlitinn. Hún hefur áður nýtt sérstök tilefni á stjórnmálaferlinum til að klæðast litríkum flíkum með fallegu mynstri. 

Ný ríkistjórn Bjarna Benediktssonar tók við í vikunni. Bjarkey var …
Ný ríkistjórn Bjarna Benediktssonar tók við í vikunni. Bjarkey var í litríkum kjól í stíl við hárlitinn. mbl.is/Kristinn Magnússon
Bjarkey var í jakka með fallegu mynstri og stuttu pilsi …
Bjarkey var í jakka með fallegu mynstri og stuttu pilsi við þingsetningu í september í fyrra. mbl.is/Eggert Jóhannesson
Bjarkey í flottum kjól frá Konga á stórum degi í …
Bjarkey í flottum kjól frá Konga á stórum degi í þinginu. Hún birti myndina á Instagram árið 2022. Skjáskot/Instagram

Hárið er hluti af útlitinu

Þegar kemur að hártískunni er Bjarkey dugleg að breyta til. Hvort sem það er að breyta hárgreiðslunni, láta stytta hárið eða jafnvel skipta um lit. Í vikunni skartaði hún ekki bara mjög stuttu hári heldur líka rauðum lit. Hún er ekki eina á rauða vagninum á Alþingi en Þórhildur Sunna Ævarsdóttir, þingmaður Pírata, er einnig með svipaðan lit en þó mun meira af honum.  

Bjarkey Olsen Gunnarsdóttir og Þórhildur Sunna Ævarsdóttir eru báðar með …
Bjarkey Olsen Gunnarsdóttir og Þórhildur Sunna Ævarsdóttir eru báðar með rautt í hárinu. Samsett mynd
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál