Eyjamenn höfðu betur gegn KA

Frá Hásteinsvelli í dag.
Frá Hásteinsvelli í dag. Ljósmynd/Sigfús

ÍBV vann 2:1 sigur á KA í Pepsi-deild karla í knattspyrnu í Vestmannaeyjum í dag.

KA menn komust yfir með frábæru marki frá Bjarna Mark Antonssyni en einungis þremur mínútum síðar jafnaði Gunnar Heiðar Þorvaldsson metin.

Í byrjun seinni hálfleiks skoraði Shahab Zahedi svo sigurmarkið fyrir Eyjamenn með frábærum tilþrifum.

Eyjamenn eru nú með 16 stig í deildinni en eru áfram í 9. sætinu og KA menn enn þá með 18 stig í 7. sæti.

ÍBV 2:1 KA opna loka
90. mín. Leik lokið Eyjamenn vinna sterkan sigur á KA.
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert