Kórdrengir enn taplausir

Kórdrengir eru enn taplausir í öðru sæti 3. deildar karla í fótbolta eftir sannfærandi 4:1-útisigur á Augnabliki í dag.

Magnús Þórir Matthíasson skoraði tvö mörk fyrir Kórdrengi og Daníel Gylfason og Einar Orri Einarsson komust einnig á blað. Ómar Farooq Ahmed skoraði eina mark Augnabliks. 

Reynir S. vann sinn þriðja sigur í sumar er liðið gerði góða ferð á Vopnafjörð og vann 2:1-sigur á Einherja. Óðinn Jóhannsson og Aron Örn Reynisson komu Reyni í 2:0 áður en Bjartur Aðalbjörnsson minnkaði muninn. 

KF er með 16 stig, einu stigi minna en Kórdrengir, eftir sannfærandi 3:0-sigur á Hugin/Hetti á Ólafsfjarðarvelli. Jordan Damachoua og Halldór Logi Hilmarsson komu KF í 2:0, áður en Kristófer Einarsson skoraði sjálfsmark. 

Tveir leikir fóru fram í deildinni í gær. Vængir Júpíters unnu 1:0-útisigur á Álftanesi og KV hélt toppsætinu með 2:1-sigri á Skallagrími. Sjöundu umferðinni lýkur á morgun með leik Sindra og KH á Hornafirði. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert