Forréttindi að taka þátt í Evrópukeppni

Óskar Hrafn Þorvaldsson, þjálfari Breiðabliks.
Óskar Hrafn Þorvaldsson, þjálfari Breiðabliks. mbl.is/Eggert Jóhannesson

„Þessi leikur gegn Racing leggst frábærlega í mig,“ sagði Óskar Hrafn Þorvaldsson, þjálfari karlaliðs Breiðabliks í knattspyrnu, í samtali við mbl.is í dag.

Blikar mæta Racing frá Lúxemborg í fyrri leik liðanna í 1. umferð Sambandsdeildar UEFA á Josy Barthel-leikvanginum í Lúxemborg á morgun.

„Það eru forréttindi að fá að taka þátt í Evrópukeppni og eitthvað sem leikmenn liðsins hafa unnið fyrir. Við getum satt best að segja varla beðið eftir því að spila á morgun.

Þetta er líka góður tímapunktur fyrir okkur til þess að spila Evrópuleik. Það hefur verið þétt keyrsla í deildinni heima fyrir og þetta brýtur aðeins upp tímabilið.

Takturinn er góður í liðinu og stemningin í kringum þetta er aðeins öðruvísi en maður er vanur sem gefur þessu smá krydd í þokkabót,“ sagði Óskar Hrafn.

Blikar hafa verið á miklu skriði að undanförnu og eru …
Blikar hafa verið á miklu skriði að undanförnu og eru í öðru sæti deildarinnar með 22 stig. Ljósmynd/Jón Helgi Pálmason

Vita lítið um mótherjana

Tímabilinu í úrvalsdeildinni í Lúxemborg lauk í lok maí og mótherjar Blika eru því á miðju undirbúningstímabili en Racing hafnaði í fjórða sæti deildarinnar á síðustu leiktíð.

„Við vitum satt best að segja ekki mikið um þetta Racing-lið. Þeir eru með nýjan þjálfara og eru bara á sínu undirbúningstímabili. Þeir eru búnir að spila einhverja fjóra æfingaleiki fyrir luktum dyrum þannig að við erum aðeins að renna blint í sjóinn með það út í hvað við erum að fara.

Það sem við vitum hins vegar er að þjálfarinn þeirra er reynslumikill og hefur stýrt liðum á borð við Arminia Bieleféld og Kaiserslautern í Þýskalandi. Þeir vilja pressa, spila út frá marki og liðið þeirra er að stórum hluta samansett af frönskum leikmönnum með bakgrunn úr sterkum frönskum akademíum.

Við eigum að vera í betra leikformi en þeir, en þetta er klárlega lið sem vill spila jákvæðan fótbolta, bæði sóknar- og varnarlega. Það er erfitt að gera sér grein fyrir styrkleika deildarinnar í Lúxemborg en hún verður sífellt sterkari.

Sem dæmi hefur eitt af toppliðum deildarinnar farið tvívegis inn í riðlakeppni Evrópudeildarinnar á síðustu þremur árum, sem segir manni ýmislegt. Í grunninn þurfum við því að spila okkar leik, vera við sjálfir, og vera bæði hugrakkir og djarfir.“

Árni Vilhjálmsson, framherji Blika, er að glíma við smávægileg meiðsli.
Árni Vilhjálmsson, framherji Blika, er að glíma við smávægileg meiðsli. Ljósmynd/Kristinn Steinn Traustason

Smávægileg meiðsli

Blikar ætla sér áfram í næstu umferð en taka einn leik fyrir í einu.

„Elfar Freyr Helgason er ennþá að glíma við meiðsli og Árni Vilhjálmsson er að koma til baka eftir að hafa meiðst gegn HK í lok júní. Hversu mikið Árni mun spila verður eiginlega bara að koma í ljós og það ætti að skýrast betur eftir æfinguna í dag. Að öðru leyti eru allir leikmenn liðsins heilir heilsu og klárir í slaginn.

Markmiðið er fyrst og síðast að vinna leikinn á morgun. Við byrjum á því og svo sem ekkert annað sem við getum hugsað um þannig séð. Svo kemur seinni leikurinn bara í næstu viku. Við viljum fara eins langt og við getum í þessari keppni og næla þannig í dýrmæta reynslu. Það er gríðarlega gott fyrir íslensk lið að fá leiki gegn erlendum andstæðingum og þetta er eitthvað sem við getum lært mikið af,“ bætti Óskar Hrafn við í samtali við mbl.is.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert