Nökkvi með þriggja ára samning

Nökkvi Þeyr Þórisson í leik með KA gegn Víkingi á …
Nökkvi Þeyr Þórisson í leik með KA gegn Víkingi á dögunum. Það reyndist síðasti heimaleikur hans með Akureyrarliðinu. Ljósmynd/Þórir Tryggvason

Belgíska knattspyrnufélagið Beerschot frá Antwerpen kynnti nú fyrir stundu Nökkva Þey Þórisson sem nýjan leikmann félagsins.

Beerschot kaupir Nökkva af KA en hann er sem kunnugt er markahæsti leikmaður Bestu deildar karla í ár með 17 mörk fyrir Akureyrarfélagið.

Hann hefur skrifað undir þriggja ára samning við Beerschot með möguleika á framlengingu um eitt ár.

Beerschot er í öðru sæti belgísku B-deildarinnar eftir að hafa fallið úr A-deildinni í vor. Fyrsti leikur Nökkva gæti verið gegn hinu Íslendingaliðinu í deildinni, Lommel, sem Kolbeinn Þórðarson leikur með en Beerschot tekur á móti Lommel á föstudagskvöldið.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert