Frá Chicago til Þróttar

Þróttarkonur hafa fengið liðsauka frá Bandaríkjunum.
Þróttarkonur hafa fengið liðsauka frá Bandaríkjunum. Ljósmynd/Kristín Hallgrímsdóttir

Kvennalið Þróttar í Reykjavík hefur fengið liðsauka frá Bandaríkjunum fyrir komandi keppnistímabil í fótboltanum.

Mikenna McManus, 23 ára varnarmaður, er komin til liðs við Þróttara en hún var í röðum atvinnuliðsins Chicago Red Stars á síðasta tímabili og lék einn leik með liðinu í bandarísku NWSL-deildinni en var ónotaður varamaður í 15 leikjum liðsins.

Fram að því lék hún með Northeastern-háskólanum í bandarísku háskóladeildinni.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert