Sammála um að Birkir yrði ekki með

Birkir Bjarnason í leik með íslenska landsliðinu í nóvember síðastliðnum.
Birkir Bjarnason í leik með íslenska landsliðinu í nóvember síðastliðnum. Ljósmynd/KSÍ

Arnar Þór Viðarsson, þjálfari íslenska karlalandsliðsins í knattspyrnu, segir að Birkir Bjarnason, leikjahæsti leikmaður liðsins frá upphafi, hafi verið sér sammála um að hann tæki ekki þátt í komandi verkefni í undankeppni EM 2024.

Helstu ástæðuna fyrir því að Birkir er ekki valinn að þessu sinni sagði Arnar Þór vera þá að hann hafi lítið spilað fyrir félagslið sitt, Adana Demirspor, á yfirstandandi tímabili.

„Við Birkir ræddum auðvitað saman. Hann er í svolítið erfiðri stöðu hjá sínu félagsliði í Tyrklandi, er að spila lítið, miklu minna en hann vonaðist eftir, og er að reyna að losna frá félaginu en það hefur tekið tíma.

Vegna þeirrar stöðu sem hann er í þá vorum við sammála um að hann yrði ekki með að þessu sinni.

Birkir er leikjahæsti leikmaður Íslands frá upphafi og hefur enn mikið fram að færa, mikla og ómetanlega reynslu sem nýtist liðinu bæði innan og utan vallar, og hann er þannig leikmaður og karakter að hann setur hagsmuni landsliðsins fram yfir sína eigin,“ sagði Arnar Þór í samtali á heimasíðu KSÍ.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert