Birkir, Albert og Sveinn ekki í landsliðshópnum - Sævar nýliði

Sævar Atli Magnússon er nýliði í landsliðshópnum.
Sævar Atli Magnússon er nýliði í landsliðshópnum. mbl.is/Kristinn Magnússon

Arnar  Þór Viðarsson, þjálfari karlalandsliðsins í knattspyrnu, tilkynnti í dag leikmannahópinn fyrir leikina gegn Bosníu og Liechtenstein í undankeppni EM 2024 sem fram fara dagana 23. og 26. mars.

Birkir Bjarnason, leikjahæsti landsliðsmaður Íslands og leikmaður Adana Demirspor í Tyrklandi, er ekki í hópnum. Ekki heldur Albert Guðmundsson frá Genoa á Ítalíu eða Sveinn Aron Guðjohnsen, sóknarmaður Elfsborg í Svíþjóð.

Birkir hefur ekki leikið með Adana Demirspor eftir jarðskjálftana í Tyrklandi og verið í fríi frá æfingum liðsins.

Sævar Atli Magnússon, sóknarmaður Lyngby í Danmörku, er hins vegar í sterkasta hópnum í fyrsta skipti en hann lék sína fyrstu tvo A-landsleiki í janúar þegar Ísland mætti Eistlandi og Svíþjóð.

Aron Einar Gunnarsson leikur bara gegn Liechtenstein. Hann þarf að taka út leikbann í leiknum við Bosníu þar sem hann fékk rauða spjaldið í síðasta leik Íslands í Þjóðadeildinni síðasta haust, gegn Albaníu.

Hópurinn er þannig skipaður:

Markverðir:
Rúnar Alex Rúnarsson, Alanyaspor, 20 leikir
Elías Rafn Ólafsson, Midtjylland, 4 leikir
Patrik S. Gunnarsson, Viking Stavanger, 3 leikir

Varnarmenn:
Aron Einar Gunnarsson, Al-Arabi, 100 leikir, 2 mörk
Hörður Björgvin Magnússon, Panathinaikos, 44 leikir, 2 mörk
Sverrir Ingi Ingason, PAOK Saloniki, 40 leikir, 3 mörk
Guðlaugur Victor Pálsson, DC United, 32 leikir, 1 mark
Alfons Sampsted, Twente, 14 leikir
Davíð Kristján Ólafsson, Kalmar, 13 leikir
Daníel Leó Grétarsson, Slask Wroclaw, 12 leikir

Miðjumenn:
Jóhann Berg Guðmundsson, Burnley, 82 leikir, 8 mörk
Arnór Ingvi Traustason, Norrköping, 45 leikir, 5 mörk
Arnór Sigurðsson, Norrköping, 25 leikir, 2 mörk
Mikael Anderson, AGF, 18 leikir, 2 mörk
Ísak B. Jóhannesson, Köbenhavn, 17 leikir, 3 mörk
Aron Elís Þrándarson, OB, 17 leikir, 1 mark
Þórir Jóhann Helgason, Lecce, 16 leikir, 2 mörk
Stefán Teitur Þórðarson, Silkeborg, 15 leikir, 1 mark
Hákon Arnar Haraldsson, Köbenhavn, 7 leikir

Sóknarmenn:
Alfreð Finnbogason, Lyngby, 63 leikir, 15 mörk
Jón Dagur Þorsteinsson, OH Leuven, 24 leikir, 4 mörk
Andri Lucas Guðjohnsen, Norrköping, 13 leikir, 3 mörk
Mikael Egill Ellertsson, Venezia, 10 leikir
Sævar Atli Magnússon, Lyngby, 2 leikir

Fimm leikmenn til viðbótar eru til taks ef forföll verða í hópnum. Þeir eru eftirtaldir:

Hjörtur Hermannsson, Pisa, 25 leikir, 1 mark
Sveinn Aron Guðjohnsen, Elfsborg, 19 leikir, 2 mörk
Guðmundur Þórarinsson, OFI Krít, 12 leikir
Dagur Dan Þórhallsson, Orlando City, 4 leikir
Nökkvi Þeyr Þórisson, Beerschot, 1 leikur

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert