Alexis Mac Allister reyndist hetja Brighton þegar liðið heimsótti Crystal Palace í ensku úrvalsdeildinni í knattspyrnu á Selhurst Park í London í dag.
Leiknum lauk með 1:1-jafntefli en Allister skoraði jöfnunarmark Brighton í uppbótartíma.
Wilfried Zaha kom Palace yfir strax á 19. mínútu með marki úr vítaspyrnu eftir að brotið hafði verið á Michy Batshuayi innan teigs.
Svipmyndir úr leiknum má sjá hér fyrir ofan en mbl.is færir ykkur efni úr enska boltanum í samvinnu við Símann sport.