Michail Antonio skoraði sannkallað draumamark er West Ham gerði 1:1-jafntefli gegn Manchester City í Lundúnum í ensku úrvalsdeildinni í knattspyrnu í dag. Mörkin úr leiknum má sjá í spilaranum hér að ofan.
Heimamenn komust yfir á 17. mínútu með ótrúlegu marki. Vladimir Coufal átti fyrirgjöf frá hægri og Antonio skoraði með viðstöðulausu skoti úr hjólhestaspyrnu, óverjandi fyrir Ederson í markinu.
Íslandsvinurinn Phil Foden kom inn sem varamaður í hálfleik og var snöggur að setja mark sitt á leikinn, jafnaði metin á 51. mínútu með góðu skoti innan teigs eftir sendingu frá Joao Cancelo. Fleiri urðu mörkin ekki og skildu liðin því jöfn.
West Ham er í 5. sæti með níu stig eftir sjö leiki en City er í 8. sætinu, einnig með níu stig en þó aðeins eftir sex leiki.