Með húðflúr sem táknar erfiðisvinnu

„Það táknar erfiðisvinnu,“ sagði Myk­hai­lo Mudryk, nýjasti leikmaður enska knattspyrnufélagsins Chelsea, við komuna til félagsins þegar hann útskýrði eitt af fjölmörgum húðflúrum sínum.

Mudryk, sem er 22 ára gamall, kemur til félagsins frá Shakhtar Donetsk þar sem hann hefur leikið allan sinn feril.

Chelsea þurfti að borga 62 milljónir punda fyrir úkraínska sóknarmanninn en alls á hann að baki 8 A-landsleiki fyrir Úkraínu.

„Ég er kominn hingað til þess að leggja hart að mér og það er ein af ástæðum þess að ég er kominn á þann stað sem ég er í dag,“ sagði Mudryk meðal annars.

Viðtalið við hann má sjá í heild sinni í spilaranum hér fyrir ofan.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert