Haaland ekki með í stórleiknum

Erling Haaland er að glíma við meiðsli.
Erling Haaland er að glíma við meiðsli. AFP/Oli Scarff

Norski markahrókurinn Erling Haaland verður ekki með Manchester City í stórleiknum gegn Liverpool í ensku úrvalsdeildinni í fótbolta í dag.

Haaland er að glíma við meiðsli, en hann var ekki með norska landsliðinu í leikjunum gegn Spáni og Georgíu í landsleikjahléinu.

„Hann er ekki klár. Honum leið ekki nógu vel í dag, en þetta er ekki stórt vandamál hjá honum,“ sagði Pep Guardiola, knattspyrnustjóri City, við BT-sjónvarpsstöðina fyrir leikinn, sem hefst klukkan 11:30.  

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert