McTominay hetja Manchester United (myndskeið)

Aston Villa tók á móti Manchester United í ensku úrvalsdeildinni í fótbolta í dag og endaði leikurinn með sigri gestanna, 2:1.

Scott McTominay skoraði sigurmarkið á 86. mínútu eftir að hafa komið inn á sem varamaður fyrr í leiknum.

Sigurinn var gríðarlega mikilvægur fyrir Manchester United en liðsmenn hafa nú minnkað forskot Aston Villa í 4. sætinu niður í fimm stig.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert