31. Þáttur Leikjavarpsins kominn í loftið

Grafík/Nörd Norðursins/Nintendo

Daníel Rósinkrans og Sveinn hjá Nörd Norðursins og Bjössi hjá Gamestöðinni fjalla um allt það helsta úr heimi tölvuleikja í nýjasta hlaðvarpsþætti Leikjavarpsins. Leikjavarpið er tölvuleikjahlaðvarp á vegum Nörd Norðursins.

Nintendo í sviðsljósinu

Í þættinum er ákveðið Nintendo þema þar sem fjallað er um væntanlega Animal Crossing viðbót, Nintendo Online viðbótaráskrift sem gerir áskrifendum kleift að spila gamla N64 og Sega Genesis leiki á Switch og að lokum rýnir Rósinkrans í Metroid Dread sem margir Nintendo-spilarar hafa beðið spenntir eftir.

Auk þess fjalla þremenningarnir um Gotham Knights, Suicide Squad og Back 4 Blood sem kom út í seinustu viku. Tölvuleiknum var streymt á Twitch-rás Nörd Norðursins fyrir nokkrum dögum þar sem nördarnir börðust hetjulega gegn óðum zombískrímslum.

Tæknimál varðandi PlayStation 5 tekin fyrir

Tæknimál koma einnig við sögu þar sem Sveinn upplýsir hlustendur um hvað ber að hafa í huga þegar verið er að uppfæra geymsluplássið á PS5 leikjatölvunni. Umræðuefnið tengist grein sem var nýlega birt á heimasíðu Nörd Norðursins þar sem verð og framboð á SSD diskum fyrir PS5 hér á landi var sérstaklega skoðað. Samhliða þeirri umfjöllun birti Nörd Norðursins nýlega leiðbeiningar þar sem sýnt er hvernig hægt er að bæta SSD diski við PS5 tölvuna.

Hér að neðan má hlusta á hlaðvarpið í heild sinni.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert